Hlutur lífeyrissjóða í kísilverinu á Bakka færður niður í núll krónur

Félag sem heldur utan um eignar­hald lífeyris­sjóða og Íslands­banka í kísilveri PCC á Bakka býr sig undir verstu sviðsmynd, gjaldþrot kísil­versins. Engin starfsemi hefur verið í því í rúmt ár.

Kísilver PCC á Bakka
Kísilver PCC á Bakka 80 manns misstu vinn­una í júlí í fyrra þegar starf­semi var stöðvuð. Mynd: PCC

Félagið Bakka­stakkur, sem stofnað var utan um fjár­festingu lífeyris­sjóða og Íslands­banka í kísil­verinu PCC á Bakka við Húsavík, hefur fært virði hlutar síns í kísil­verinu niður í núll krónur.

Þetta kemur fram í nýjum ársreikningi félagsins vegna ársins 2025, sem Viðskipta­blaðið greindi fyrst frá.

Bakka­stakkur tapaði tæpum 1,7 milljarði króna í fyrra en tæpum 4,9 milljörðum árið 2024. „Markaðs­aðstæður voru erfiðar árið 2025 eins og nokkur fyrri ár, m.a. vegna innflutnings á ódýrum kísil­málmi frá Kína til Vestur­heims,“ segir í ársreikningnum. „Þróun í byrjun árs 2025 var nokkuð hagstæð en í kjölfar óróa á alþjóða­mörkuðum, m.a. vegna óvissu í tolla­málum, lækkuðu verð skarpt þegar leið á fyrri hluta þess árs.“

Félagið Bakka­stakkur var stofnað 2014 til að fjárfesta í PCC á Bakka og á um 34,6% hlut í kísil­verinu. Hluthafar í félaginu eru helst lífeyris­sjóðir og Íslands­banki, sem fer með 18,25% hlut. Gildi á 19,43%, Stapi 14,84%, …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Ofterfallvöltgæfanilífinu
    0
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Þetta er ekki bara saga um misheppnaða fjárfestingu. Hana verður einnig að skoða í samhengi við kvótakerfið, framsal aflaheimilda og þá misheppnuðu byggðastefnu sem fylgdi í kjölfarið.

    Þegar aflaheimildir færðust úr byggðunum og söfnuðust á færri hendur urðu til gríðarleg einkaverðmæti. Samfélögin sem misstu störf og atvinnugrundvöll þurftu hins vegar nýja atvinnuuppbyggingu. Þá komu ríkið, sveitarfélögin, orkufyrirtækin og loks lífeyrissjóðir almennings að borðinu.

    Arðurinn af sameiginlegri auðlind var að miklu leyti einkavæddur, en áhættan af því að bæta þær afleiðingar sem sjávarbyggðirnar máttu þola vegna kerfisins var samfélagsvædd. Nú situr almenningur uppi með tapið í gegnum lífeyrissjóðina.

    Bakki er því ekki aðeins dæmi um vonda fjárfestingarákvörðun. Hann er líka afleiðing af stefnu þar sem verðmætin sem áður héldu uppi sjávarbyggðunum færðust til fárra sægreifa, en ábyrgðin og áhættan af kerfisbreytingunni lenti á almenningi.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár