Miðflokkskona sótti ráðstefnu um fjöldabrottvísanir

Helena Ólöf Snorra­dóttir, vara­maður í mál­efna­nefnd Mið­flokks­ins, sótti alþjóð­lega ráð­stefnu um fjölda­brott­vís­anir inn­flytj­enda. Ræðumenn voru úr röðum hvítra þjóð­ern­is­sinna með teng­ingar við nýnas­ista­hreyf­ingar, auk Greg Bovino, sem leiddi brott­vís­unar­á­tak Donalds Trump í Minnesota.

Miðflokkskona sótti ráðstefnu um fjöldabrottvísanir
Helena Ólöf Snorra­dóttir Helena sótti lands­þing Mið­flokks­ins í fyrra og stendur hér á milli Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns flokks­ins, og Sverris Helga­sonar, þátta­stjórn­anda Bjór­kasts­ins sem kallar sig „kyn­þátta­raun­hyggju­mann“ og hefur talað fyrir fjölda­brott­vís­unum.

Öfga­hægri­menn, nýnas­istar og svo­kall­aðir „identitari­ans“ voru meðal ræðu­manna á alþjóð­legri ráð­stefnu í Portúgal í lok maí um fjölda­brott­vís­anir inn­flytj­enda úr Evrópu, allt frá flótta­mönnum til rík­is­borg­ara af erlendum upp­runa sem þykja „ekki hafa aðlag­ast“.

Fjölda­brott­vís­anir (e. remigration) er hug­tak sem upp­haf­lega var notað í hópum nýnas­ista en evr­ópskir stjórn­mála­flokkar á hægri vængnum nota nú í auknum mæli í stað sam­bæri­legra hug­taka eins og „þjóð­ern­is­hreinsun“ (e. ethnic cleansing) sem eru bein­tengd við nas­isma.

Helena Ólöf Snorra­dóttir, sem er vara­maður í mál­efna­nefnd Mið­flokks­ins, sótti ráð­stefn­una. Í sam­tali við Heim­ild­ina seg­ist hún hafa verið eini Íslend­ing­ur­inn af þeim um 600 manns sem mættu og að þró­unin í Evrópu sé eitt­hvað sem hún ótt­ast. „Þetta er eitt­hvað sem ég stend föst á og hef sterkar skoð­anir gagn­vart,“ segir hún.

„Ég fékk að hitta Jared Taylor, sem er faðir þess­arar hug­myndar, sem var æði,“ segir hún. Taylor er hvítur yfir­burða­hyggju­maður sem aðhyllist …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HH
    Hjörtur Herbertsson skrifaði
    Þetta eru helvítis fasistar alt saman.
    0
  • Birgit Braun skrifaði
    Ef þetta yrði raunveruleiki væri rísastór fólksfluttning framundan, í Evrópu og Bandaríkjunum: flytja þyrfti alla ! innflytjendur til sínna upphafslanda: breta til Bretlands, frakka til Frakklands, taílendingar til Taílands..og íslendinga til Íslands. Maður gleymir því svo oft að margir íslendingar búa sem útlendingar í öðrum löndum.... Þá þyrfti að ákveða hvað margar kynslóðir aftur í tímann " hreinsunin " á að byrja.....að fólki hér á landi detti svona í hug...fólki sem er klárlega sjálft með erlendan bakgrunn!
    5
  • Björn Grétar Sveinsson skrifaði
    þetta er verra en ég hélt
    4
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Miðflokkur Dr. Sigmundar Davíðs virðist vera samansafn af vitleysingum
    4
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    "Senda alla innflytjendur úr landi sem ekki hafa aðlagast 100prósent". Hvað af okkar samfélagi væri starfhæft eftir svona þjóðernishreinsanir?
    Ég gæti trúað því að Alþingismenn yrðu altént að skúra sjálfir og þrífa klósettin í lok dags.
    Svo er það líka alveg á hreinu að ég yrði ekki hér áfram ef að fjölskyldunni og flestum vinum yrði vísað úr landi, gæti vel trúað því að fleiri væru í svipaðri stöðu.
    Og hver er til þess fallinn að skilgreina hvað Íslendingur er.
    Ég held að það þurfi að taka snjallsímana af Miðflokksfólki, þau hafa ekki gott af því að hanga svona mikið á Tik Tok og X.
    Það virðist trufla fleiri en skólabörn að vera svona mikið á netinu .
    12
    • Einar Hugi skrifaði
      eins og Kelly Osbourne sagði: If you kick every Latino out of this country, then who is going to be cleaning your toilet?
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár