Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hótaði á föstudag að hækka tolla á Kanada til að standa straum af kostnaði vegna reykmengunar frá gróðureldum sem hefur lagst yfir stóran hluta Bandaríkjanna.
Þykkur reykur frá gróðureldum sem berst frá Kanada og norðurhluta Minnesota hefur leitt til viðvarana um óholl loftgæði víðs vegar um Bandaríkin.
Í dag voru 937 logandi skógareldar í Kanada og flestir þeirra voru úr böndunum, samkvæmt kanadíska upplýsingakerfinu um gróðurelda.
„Þetta er vísvitandi vanræksla og er að verða árlegur viðburður sem kostar Bandaríkin milljarða dollara,“ sagði Trump á Truth Social og bætti við að „kostnaðinum af þessari mengun verður nauðsynlega að bæta við TOLLANA sem Kanada greiðir nú þegar.“
Trump sakaði Kanada um að „viðhalda ekki“ skógum sínum á réttan hátt og vanrækja „grunndvallar stjórnun skógar og hreinsun á rusli.“
Hann sagðist ætla að hringja í Mark Carney forsætisráðherra „til að komast að því hvað þeir ætla að gera …






























Athugasemdir