Bandaríkin lýsa yfir herferð gegn Alþjóðaglæpadómstólnum

Rík­is­stjórn Trumps ætl­ar að grafa und­an Al­þjóða­glæpa­dóm­stóln­um til að verja full­veldi Banda­ríkj­anna. Ru­bio seg­ir dóm­stól­inn „heyja stríð gegn landi okk­ar“ með „svo­köll­uð­um al­þjóða­lög­um“. Lönd eins og Ís­land „munu sæta auk­inni at­hug­un“.

Bandaríkin lýsa yfir herferð gegn Alþjóðaglæpadómstólnum
Marco Rubio Utanríkisráðherra Bandaríkjanna sendi frá sér ávarp sem endaði með ógnandi skilaboðum. Mynd: AFP

Bandaríkin tilkynntu í gær um fyrihugaða herferð gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum (ICC) sem gæti falið í sér frekari refsiaðgerðir og aðrar ráðstafanir, og sökuðu hann um að vera „óþolandi ógn við fullveldi Bandaríkjanna“.

Ríkisstjórn Trumps sagðist ætla að þrýsta á önnur lönd að segja sig úr dómstólnum, sem markar verulega aukningu í viðleitni Bandaríkjanna til að einangra stofnunina í Haag og svipta hana pólitískum og fjárhagslegum stuðningi.

„Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn og vinir hans heyja stríð gegn landi okkar, ekki með byssukúlum eða flugskeytum, heldur með lögum, samningum og valdi svokallaðra alþjóðalaga,“ sagði Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í myndbandsyfirlýsingu.

Utanríkisráðuneytið sagði í yfirlýsingu að herferðin muni „kerfisbundið gera Alþjóðlega sakamáladómstólnum ókleift að starfa, beina spjótum sínum að bandarískum hermönnum eða embættismönnum, eða á annan hátt ógna fullveldi Bandaríkjanna.“

Bandaríkin hafa áður beitt aðgerðum gegn einstökum embættismönnum dómstólsins sem þeir telja ógn við hagsmuni Bandaríkjanna, en nýja „allsherjar“ herferðin mun þrýsta á aðrar …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Bandaríkin eru orðin leiðandi í kapphlaupinu niður á botninn. Hafa svosem aldrei verið sérstök en eru að toppa sjálfan sig á degi hverjum núna.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár