Lokar aðgengi að Reykjafossi og Fosslaug

Land­eig­andi segir landið við vin­sæla ferða­manna­staði í Skaga­firði nú vera í rækt og hafnar því að almenn­ingur eigi rétt á aðgangi.

Lokar aðgengi að Reykjafossi og Fosslaug
Reykja­foss Land­eig­andi hefur lokað fyrir aðgang að fossi og heitri laug á landi sínu og segir landið vera í rækt. Mynd: bromr

„Ég er land­eig­andi að Fosslaug og Reykja­fossi og hef lokað aðgangi að laug­inni og foss­inum mín megin fyrir almenna umferð, alla­vega í bili,“ til­kynnir Dagur Torfason land­eig­andi í hópnum Bakland ferða­þjón­ust­unnar á Facebook þar sem fjöldi fólks sem starfar við skipu­lagn­ingu ferða er virkt.

„Vildi láta vita svo ekki sé verið að skipu­leggja ferðir eins og staðan er í dag,“ bætir hann við. „Vin­sam­leg­ast virðið það.“

Fosslaug og Reykja­foss eru vin­sælir áfanga­staðir í Skaga­firði skammt frá Varma­hlíð. Rukkað er fyrir bíla­stæði skammt frá svæð­inu og þaðan er stutt ganga til að skoða nátt­úruperlurnar. Fosslaug er heit laug sem hægt er að baða sig í og foss­inn þekktur fyrir áhrifa­mikla en róandi feg­urð sína.

„Ég lít á það sem svo að landið sé í rækt“

Ekki náð­ist í Dag til að spyrj­ast fyrir um ástæður lok­un­ar­innar en í umræðum í Facebook hópnum benda ýmsir á að land­eig­anda sé óheim­ilt að tak­marka …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Umdeild gjaldskylda við Reykjanesvita: „Þetta er bara slóði“
UmhverfiðFerðamannalandið Ísland

Umdeild gjald­skylda við Reykja­nes­vita: „Þetta er bara slóði“

Samkvæmt lóða­leigu­samn­ingi hefur fyr­ir­tækið Reykja­nes Aurora heim­ild til að inn­heimta bíla­stæða­gjöld í 500 metra rad­íus við Reykja­nes­vita þrátt fyrir að leigja aðeins hluta af því landi. Eig­and­inn segir að reynt hafi verið á gjald­heimt­una fyrir dómi og hún úrskurðuð honum í vil. „Þetta er búið að vera vand­ræða­mál,“ segir Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar.
Ósnortin víðerni: „Sorglegt að við getum ekki hugsað lengra fram í tímann“
SkýringFerðamannalandið Ísland

Ósnortin víð­erni: „Sorglegt að við getum ekki hugsað lengra fram í tím­ann“

„Þetta er nátt­úr­lega bara fyrir ákveð­inn hóp og skemmir í leið­inni upp­lifun hinna sem vildu njóta nátt­úr­unnar,“ segir Svanhvít Helga Jóhanns­dóttir um fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir við Hof­fellslón. Breyt­ingar við lónið, Skafta­fell og Von­ar­skarð hafa vakið upp sterk við­brögð og spurn­ingar um nátt­úru­vernd í og við UNESCO-svæði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár