Borgarráð fundar um uppsagnir upplýsingafulltrúa

Nýr meiri­hluti borg­ar­stjórnar Reykja­víkur hefur sagt upp öllum upp­lýs­inga­full­trúum og lagt niður Mann­rétt­inda­skrif­stofu Reykja­vík­ur­borgar. Fundur borg­a­ráðs stendur yfir en vænta má upp­lýs­inga um ákvörð­un­ina í kringum kl. 16.

Borgarráð fundar
Borg­ar­ráð fundar Nýr meiri­hluti hefur lagt niður skrif­stofu sam­skipta og við­burða. Mynd: Golli

Fundur borg­ar­ráðs stendur nú yfir en búast má við fund­ar­gerð í kringum kl. 16 varð­andi upp­sagnir upp­lýs­inga­full­trúa borg­ar­innar.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar fengu starfs­menn póst í morgun þar sem óskað var eftir sam­tali við þá. Starfs­fólkið fór þá eitt í einu á fund með Þor­steini Gunn­ars­syni borg­ar­rit­ara sem til­kynnti upp­sagn­irnar. Heim­ildir mbl.is herma að við­töl séu í gangi og verði lík­lega fram eftir degi. 

Heim­ildin hafði sam­band við Evu Bergþóru Guð­bergs­dóttur, sam­skipta­stjóri Reykja­vík­ur­borgar, sem gat ekki veitt við­tal að svo stöddu en henni var sagt upp í morgun. 

Þá bað Einar Þor­steins­son borg­ar­full­trúi blaða­mann og upp­töku­mann Heim­ild­ar­innar frá því að taka upp mynd­bönd í Ráð­hús­inu þar sem um erf­iðan dag fyrir margt starfs­fólk væri að ræða. Hann gat ekki tjáð sig um málið að svo stöddu en benti á að eftir fund borg­ar­ráðs muni borg­ar­stjórn geta veitt við­töl um málið.

Samkvæmt heim­ildum RÚV hefur Mann­rétt­inda­skrif­stofa Reykja­vík­ur­borgar einnig …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár