Hafnaði að loka réttarhöldum yfir Írisi Helgu

Kröfu Írisar Helgu Jónatans­dóttur um að loka réttar­höldum yfir sér var hafnað af dómara. Hún hefur verið ákærð fyrir fjölmörg afbrot, meðal annars umsáturs­einelti og að dreifa ósannindum um nafn­greinda einstaklinga.

Íris Helga Jónatansdóttir
Íris Helga Jón­atans­dóttir Mætti fyrir dóm­ara og neit­aði öllum sökum. Svo vildi hún loka rétt­ar­höld­unum. Mynd: Golli

Dómari við Héraðsdóm Reykjaness hafnaði kröfu lögmanns Írisar Helgu Jónatans­dóttur sem hefur verið ákærð fyrir umsáturs­einelti, brot á barna­verndar­lögum, rangar sakar­giftir, skjala­fals, hótanir og ærumeiðandi aðdróttanir. Farið var fram á lokuð réttarhöld við þing­festingu málsins í síðustu viku þar sem Íris Helga neitaði jafnframt alfarið sök í þeim 68 ákæru­liðum sem voru listaðir upp í sautján blaðsíðna ákæru á hendur henni. Þá var annar maður ákærður fyrir hlutdeild í einu brotanna. Hann hefur neitað sök og segist hafa verið blekktur.

Ekki liggur fyrir hvort lögmaður Írisar Helgu muni kæra úrskurðinn til Lands­réttar en allir réttar­gæslu­mennirnir og saksóknari höfnuðu því alfarið að þing­haldinu yrði lokað. Íris Helga er meðal annars ákærð fyrir að dreifa ósannindum um nafn­greinda einstaklinga á samfélags­miðlum undir nafnleynd auk þess sem henni er gefið að sök að hafa skilið eftir krukku sem í átti að vera fóstur fyrir utan heimili pars sem hún á að …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Írisarmálið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár