Fúlsar við Samfylkingunni

Brynj­ar Ní­els­son, fram­bjóð­andi Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyr­ir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arn­ar, stað­hæf­ir að flokk­ur­inn fari ekki í meiri­hluta með Sam­fylk­ing­unni. „Ég get ekki gert borg­ar­bú­um það,“ seg­ir hann.

Fúlsar við Samfylkingunni
Brynjar Níelsson Situr í þriðja sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og fúlsar við samstarfi við Samfylkinguna. Mynd: Bára Huld Beck

Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki mynda meirihluta með Samfylkingunni eftir borgarstjórnarkosningarnar á laugardag, ef marka má yfirlýsingu Brynjars Níelssonar, fyrrverandi þingmanns og frambjóðanda í þriðja sæti lista Sjálfstæðismanna. 

Hann sagðist „skynja áhyggjur margra“ yfir því að Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði að mynda meirihluta með Samfylkingunni, sem nú hefur yfir að ráða borgarstjórastólnum. „Ég treysti mér til að fullyrða að það verður ekki,“ segir Brynjar á Facebook. „Ég hef engan áhuga á að auka á vandkvæði mín í lífinu og ég get ekki gert borgarbúum það.“

Nú þegar hefur Framsóknarflokkurinn, undir forystu Einars Þorsteinssonar, útilokað samstarf við Samfylkinguna. Flokkur hans mælist þó með lítið fylgi, eða um 3% í síðustu Gallupkönnun.

Í könnun Gallups sem gerð var 17. til 29. apríl mældist Sjálfstæðisflokkurinn með nokkra yfirburði í Reykjavík, eða 30% fylgi gegn 22% fylgi Samfylkingarinnar. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2026

Hver fékk hvað við samningaborðið í Reykjavík?
Greining

Hver fékk hvað við samn­inga­borð­ið í Reykja­vík?

Lang­flest lof­orð í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni koma frá Sjálf­stæð­is­flokkn­um. Við­reisn kem­ur við sögu á völd­um svið­um, einkum hús­næð­is- og skipu­lags­mál­um, en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn virð­ist minnst sýni­leg­ur. Nokk­ur lof­orð í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni er ekki að finna hjá nein­um flokk­anna þriggja, einkum þau sem snúa að smá­at­rið­um í rekstri borg­ar­inn­ar.

Mest lesið

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
2
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár