Mynd: Golli

Þriggja ára ævintýri að ljúka

Vikum saman hafa útskrift­ar­nem­endur í fata­hönnun við Lista­há­skóla Íslands unnið að und­ir­bún­ingi loka­sýn­ingar. Eft­ir­vænt­ingin lá í loft­inu á sýn­ing­ar­dag og að sýn­ingu lok­inni féllust nem­endur í faðma.

Þó að dags­birtu gæti langt fram á kvöld í íslenska vor­inu og dag­ur­inn leng­ist stöðugt, er ekki þar með sagt að útskrift­ar­nem­endur í fata­hönnun við Lista­há­skóla Íslands hafi notið auk­innar birtu, nema rétt í gegnum stóra glugga á fyrir vel lýstu vinnu­rými sínu á jarð­hæð gamla Kenn­ara­há­skól­ans í Stakka­hlíð. Þar hafa þau varið flestum dögum vors­ins og langt fram á kvöld, oft umkringd nem­endum af fyrri stigum náms­ins og leið­bein­endum. Hug­myndir, hand­tök og sauma­spor eru ótelj­andi hjá þessum tíu nem­enda hópi sem kallað hefur til vini og ætt­ingja, ekki aðeins til að hjálpa til við loka­frá­gang þeirra sex alklæðn­aða sem hvert þeirra ætla að sýna heldur líka til að bera þá um tísku­sýn­ing­ar­gólf á útskrift­ar­sýn­ing­unni í Hörpu.

„Ég veit ekki hvort ég muni nokkurn tíma verða aftur hluti af svona til­finn­inga­styrkj­andi hópi“
Skipu­lagt kaosSérhver flötur er vel nýttur í vinnu­rými fata­hönn­un­ar­deildar LHÍ.
Sauma­teygjurHulda Kristín tekur örhvíld …
Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár