Tónleikahald fær tíu milljónir en regluverkið ekki einfaldað

Úrbóta­sjóður tón­leika­staða verður end­ur­reistur sam­kvæmt sam­þykkt borg­ar­ráðs og tíu millj­ónum úthlutað á þessu ári. Lagt var til að reglu­verk yrði ein­faldað, en því var vísað til umsagnar skrif­stofu borg­ar­stjórnar.

Tónleikahald fær tíu milljónir en regluverkið ekki einfaldað

Borg­ar­ráð sam­þykkti á fundi sínum í gær að end­ur­reisa svo­kall­aðan úrbóta­sjóð tón­leika­staða og verður tíu millj­ónum króna varið í úthlutun á þessu ári. Tillagan kemur í kjöl­far gagn­rýni tón­leika­hald­ara og lista­manna sem hafa átt erfitt með að finna sér svið í borg­inni. 

Í sam­þykkt borg­ar­ráðs segir að til­lagan sé afrakstur svo­kallað sprett­hóps sem lagði fram til­lög­una til þes að efla tón­leika­staði í borg­inni. Ein af burð­ar­til­lögum sprett­hóps menn­ingar- og íþrótta­ráðs um efl­ingu tón­leika­staða í borg­inni var að end­ur­reisa úrbóta­sjóð tón­leika­staða sem settur var á fót 2020 sem til­rauna­verk­efni til þriggja ára.

Með þess­ari til­lögu er tryggt fjár­magn, til að setja úrbóta­sjóð­inn á lagg­irnar á ný strax á þessu ári svo hefj­ast megi handa við að renna stoðum undir öfl­ugra tón­leika­hald í borg­inni. Aftur á móti gekk borg­ar­ráð ekki svo langt að ein­falda reglu­verk í kringum tón­leika­hald og vís­aði til­lögu um ein­földun leyf­is­veit­inga til umsagnar skrif­stofu borg­ar­stjórnar.

Í grein­ar­gerð …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár