„Bara plís, ekki hækka vörurnar núna“

Inga Sæ­land sló upp­takt­inn að þjóð­arsátt með beiðni til at­vinnu­lífs­ins.

Óttast er að væntingarnar einar og sér um að verðbólga muni aukast muni valda breyttri hegðun hjá söluaðilum og neytendum, sem láti verðbólguna verða að veruleika.

Þetta er ein af ástæðum þess að Kristrún Frostadóttir og meðráðherrar hennar ákváðu að grípa til beinna aðgerða, þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar um annað, til þess að lækka verð á eldsneyti.

Með tilkynningu um lækkun virðisaukaskatts úr 24% í lægra þrepið 11% yfir sumartímann, vonast Kristrún til þess að „fletja kúfinn“ eftir eldsneytisverðhækkanir tengdar Íransstríðinu og „detta í annan takt“.

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, sendi skýr skilaboð til atvinnulífsins á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í morgun: „Bara, plís, ekki vera að hækka vörurnar núna,“ sagði hún. Verð á mat og drykk hefur hækkað um 5,8% síðasta árið, þrátt fyrir að krónan hafi styrkst, en á sama tíma lýsa stjórnendur matvörukeðjanna „meðbyr í rekstri verslana“.

Bæði Kristrún Frostadóttir, Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri hafa rætt möguleika á nýrri þjóðarsátt, sem Bjarni Benediktsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, lagði til í viðtali við RÚV í lok mars, með tilvísun í samhentar aðgerðir gegn verðbólgu árið 1990.

Hún vísaði til þess að sumar verslanir skuldbundu sig árið 2024 til þess að forðast verðhækkanir. Verðbólgan nú er 5,4%, eða það sama og í september 2024, og enn á eftir að hækka verðlag vegna Íransstríðsins.

„Það væri afskaplega ánægjulegt ef atvinnulífið okkar tæki höndum saman við okkur, eins og við höfum væntingar til, og til dæmis höfum við séð það á árum áður, eins og fyrir síðustu kjarasamninga, 2024, að stórar verslanir eins og BYKO, Húsasmiðjan, hétu því að hækka ekki verð hjá sér í sex mánuði á meðan jafnvel IKEA lækkaði verð á upp undir sex þúsund vöruflokkum, bara til þess að koma til móts við þær áskoranir sem við vorum að mæta þá sem samfélag,“ sagði Inga.

„Við erum að vona að sá árangur sem af því varð, sem var greinilegur og allir sáu auðvitað, að það sé góður hvati ásamt því að við viljum takast í hendur við atvinnulífið okkar að halda áfram á þeirri vegferð og taka hana upp að nýju og senda skilaboð út í þá sem eru að selja okkur neysluvöruna að bara, plís, ekki vera að hækka vörurnar núna. Tökum höndum saman og reynum að ná valdi á ástandinu vegna þess að það er hagur okkar allra,“ sagði hún og ítrekaði: „Það er framtíðin okkar, algerlega í hnotskurn og ég treysti því að við getum í rauninni, þegar upp er staðið, brosað björt hvað það varðar.“

Formaður bankaráðs Seðlabankans tók í svipaðan streng í ræðu sinni við ársfund bankans í gær. Þar spurði hann hvort viðskiptavinir bankanna og matvörukeðjanna hefðu fengið að njóta ávaxta rekstrarsparnaðar við sjálfvirknivæðingu verslana og banka með því að vöruverð og verðskrár lækkuðu. Bæði bankar og matvörukeðjur hafa skilað methagnaði síðustu misserin, mitt í mikilli verðbólgu.

Mikil óvissa er um þróun verðbólgunnar, en líklegt er að hún aukist til skemmri og lengri tíma vegna Íransstríðsins og afleiddra verðhækkana á olíu, áburði og fleiru, sem smitast út í annað verðlag á endanum.

Greining Íslandsbanka hefur spáð því til bráðabirgða að vísitala neysluverðs hækki um 0,4 prósentustig í apríl, 0,25 prósentustig í maí og 0,6 prósentustig í júní, sem samanlagt veldur 1,25% hækkun á höfuðstól verðtryggðra fasteignalána á næstu þremur mánuðum, en tveir þriðju hlutar lántakenda eru með verðtryggð lán. Þá sagði seðlabankastjóri í ræðu sinni í gær að hækka þyrfti stýrivexti aftur, „að óbreyttu“, en næsti fundur peningastefnunefndar er 20. maí.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íslenski verðbólgudraugurinn

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár