Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur undanfarið látið í það skína að umdeildur veislusalur sem hann reisir í Austurálmu Hvíta hússins sé í reynd yfirvarp fyrir gríðarstórt neðanjarðarbyrgi sem hýsa á lykilfólk í stjórnkerfinu, eins og hann sjálfan, ef til stórátaka kemur.
Vinnuflokkar hafa grafið fyrir byrginu í margar vikur og rifið niður eldri neyðaraðgerðamiðstöð forsetans, eða PEOC, sem var byggð í seinni heimsstyrjöldinni til að vernda forsetann, til að byggja eitthvað stærra, betra og dýpra neðanjarðar.
Á sunnudag sagði Trump í samtali við fréttamenn um borð í Air Force One að hann sæi fyrir sér 8.400 fermetra veislusal sinn sem „skúr“ yfir neðanjarðarbyrgið.

Veislusalurinn sé vörn gegn árásum
„Herinn er að byggja gríðarstóra aðstöðu undir veislusalnum, og hún er í byggingu, og okkur gengur mjög vel,“ sagði Trump.
Að sögn Trumps mun byrgið innihalda sprengjubyrgi og „mjög mikilvæga sjúkrastofnun“, þar á meðal sjúkrahús. Það verði sérútbúið fyrir nýjustu öruggu samskiptaaðferðirnar og varnir gegn lífrænum vopnum.
Hann sagði að veislusalurinn myndi vernda neðanjarðarmannvirkið fyrir drónum, byssukúlum og öðrum árásum. „Þetta er hágæða skothelt gler. Þannig að allir gluggarnir eru skotheldir,“ sagði Trump.
Í síðustu viku, þegar forsetinn ræddi um veislusalinn á ríkisstjórnarfundi, sagði hann að herinn vildi mest allra að verkefnið yrði klárað.
Dómari stöðvaði verkefnið í vikunni, með tilvísun í að þingið þyrfti að samþykkja það, þótt framkvæmdir séu löngu hafnar, og hefur Trump af þeirri ástæðu rætt um öryggisástæðurnar. Dómarinn var skipaður af George W. Bush, sem var Repúblikani eins og Trump.


„Við erum að byggja sprengjubyrgi“
Áfrýjun Trumps byggir á því að framfylgja megi framkvæmdum sem tryggja öryggi og vernd Hvíta hússins án sérstaks samþykkis þingsins.
„Við erum með lífrænar varnir út um allt,“ sagði Trump við fréttamenn í forsetaskrifstofunni í vikunni, samkvæmt tilvitnun New York Times. „Við erum með örugg fjarskipti og samskipti út um allt. Við erum að byggja sprengjubyrgi. Við erum að byggja sjúkrahús og mjög mikilvæga sjúkrastofnun. Við erum með allt þetta. Þannig að það þýðir: Mér er heimilt að halda áfram að byggja.“
Trump fór í dag fram á við þingið að hernaðarútgjöld yrðu aukin um 42% á sama tíma og skorið yrði niður í útgjöldum til velferðarmála og annarra útgjalda um 10%.
































Athugasemdir