Trump byggir risastórt byrgi undir Hvíta húsinu

Banda­ríkja­for­seti seg­ir bygg­ingu veislu­sals í Hvíta hús­inu vera yf­ir­varp fyr­ir gríð­ar­stórt byrgi sem hann læt­ur grafa fyr­ir und­ir bygg­ing­unni.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur undanfarið látið í það skína að umdeildur veislusalur sem hann reisir í Austurálmu Hvíta hússins sé í reynd yfirvarp fyrir gríðarstórt neðanjarðarbyrgi sem hýsa á lykilfólk í stjórnkerfinu, eins og hann sjálfan, ef til stórátaka kemur.

Vinnuflokkar hafa grafið fyrir byrginu í margar vikur og rifið niður eldri neyðaraðgerðamiðstöð forsetans, eða PEOC, sem var byggð í seinni heimsstyrjöldinni til að vernda forsetann, til að byggja eitthvað stærra, betra og dýpra neðanjarðar.

Á sunnudag sagði Trump í samtali við fréttamenn um borð í Air Force One  að hann sæi fyrir sér 8.400 fermetra veislusal sinn sem „skúr“ yfir neðanjarðarbyrgið.

VeislusalurinnDonald Trump, forseti Bandaríkjanna, heldur á teikningu af endurbótum á Austurálmunni þar sem hann ræðir við fréttamenn um borð í forsetaflugvélinni á leið til Joint Base Andrews í Maryland þann 29. mars 2026.

Veislusalurinn sé vörn gegn árásum

„Herinn er að byggja gríðarstóra aðstöðu undir veislusalnum, og hún er í byggingu, og okkur gengur mjög vel,“ sagði Trump.

Að sögn Trumps mun byrgið innihalda sprengjubyrgi og „mjög mikilvæga sjúkrastofnun“, þar á meðal sjúkrahús. Það verði sérútbúið fyrir nýjustu öruggu samskiptaaðferðirnar og varnir gegn lífrænum vopnum.

Hann sagði að veislusalurinn myndi vernda neðanjarðarmannvirkið fyrir drónum, byssukúlum og öðrum árásum. „Þetta er hágæða skothelt gler. Þannig að allir gluggarnir eru skotheldir,“ sagði Trump.

Í síðustu viku, þegar forsetinn ræddi um veislusalinn á ríkisstjórnarfundi, sagði hann að herinn vildi mest allra að verkefnið yrði klárað.

Dómari stöðvaði verkefnið í vikunni, með tilvísun í að þingið þyrfti að samþykkja það, þótt framkvæmdir séu löngu hafnar, og hefur Trump af þeirri ástæðu rætt um öryggisástæðurnar. Dómarinn var skipaður af George W. Bush, sem var Repúblikani eins og Trump.

Framkvæmdir við Hvíta húsiðWashington, DC, Bandaríkjunum, 23. janúar 2026. Séð frá Washington-minnismerkinu heldur niðurrif á Austurálmu Hvíta hússins og að því er virðist hinnar leynilegu neyðaraðgerðamiðstöðvar forsetans, eða PEOC, áfram og á að byggja danssalinn á þessum stað.
Framkvæmdir við Hvíta húsiðVeislusalurinn átti að kosta 300 milljónir Bandaríkjadala og vera fjármagnaður með framlögum auðmanna og fyrirtækja.

„Við erum að byggja sprengjubyrgi“

Áfrýjun Trumps byggir á því að framfylgja megi framkvæmdum sem tryggja öryggi og vernd Hvíta hússins án sérstaks samþykkis þingsins.

„Við erum með lífrænar varnir út um allt,“ sagði Trump við fréttamenn í forsetaskrifstofunni í vikunni, samkvæmt tilvitnun New York Times. „Við erum með örugg fjarskipti og samskipti út um allt. Við erum að byggja sprengjubyrgi. Við erum að byggja sjúkrahús og mjög mikilvæga sjúkrastofnun. Við erum með allt þetta. Þannig að það þýðir: Mér er heimilt að halda áfram að byggja.“

Trump fór í dag fram á við þingið að hernaðarútgjöld yrðu aukin um 42% á sama tíma og skorið yrði niður í útgjöldum til velferðarmála og annarra útgjalda um 10%.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár