„Það er mikilvægt að kjósa í dag, sérstaklega í ljósi drama á milli Grænlands, Danmerkur og Bandaríkjanna,“ sagði einn kjósandi þegar blaðamaður Heimildarinnar spurði af hverju hún hefði mætt á kjörstað í Nuuk í dag. Kjósendur sem blaðamaður tók tali í höfuðstaðnum voru einróma: Kosningarnar í ár eru sérstaklega mikilvægar í ljósi óútreiknanlegs sambands Grænlands og danska konungsríkisins við Bandaríkin.
Blaðamann bar að garði um hálf fimm leytið seinnipartinn að staðartíma. Í frostinu fyrir utan kjörstað mátti líta gáma og skýli skreytta fánum og plaggötum þar sem að frambjóðendur gáfu gestum og gangandi bæklinga, kaffi og með því og nýttu allra síðasta tækifærið til þess að sannfæra kjósendur um að láta atkvæði sitt falla þeim í vil.
Rasmus Leander Nielsen, lektor í stjórmálafræði við Ilisimatusarfik – Háskólann á Grænlandi, segir geópólitíkina hafa áhrif á kosningarnar í ár og þá einna helst framganga Donalds Trumps Bandaríkjaforseta undanfarið.
Þá segir hann Grænland …















































Athugasemdir