Fimm milljóna króna hagnaður var af rekstri fyrirtækisins sem heldur utan um hlaðvarpið Þjóðmál á síðasta ári. Félagið er að öllu leyti í eigu Gísla Freys Valdórssonar þáttastjórnanda og stendur til að greiða 10 milljónir út í arð til hans vegna rekstursins. Þetta kemur fram í ársreikningi fyrirtækisins – Þjóðmál ehf. – sem skilað var í byrjun marsmánaðar.
Þar kemur einnig fram að tekjur félagsins námu 58,8 milljónum króna á árinu. Þær eru að langstærstum hluta tilkomnar vegna sölu og þjónustu en þátturinn inniheldur auglýsingar, sem ætla má að standi undir stórum hluta þessara tekna.
Á vef hlaðvarpsins kemur fram að Þjóðmál hafi kynnt vörur og þjónustu fyrirtækja á borð við Toyota, Ölgerðina, Nóa Síríus, Orkunnar, Símans, auk íþróttasérsambandsins KSÍ.
Kostnaðarverð seldra vara er sagt 14,9 milljónir króna, en laun og tengd gjöld 13 milljónir, og aðkeyptir verktakar 12 milljónir. Ekki kemur fram í reikningnum hvaða þjónusta var keypt né …

















































Athugasemdir