Norska stjórnmálafréttasíðan Altinget.no heldur því fram í grein sem birtist á vef þeirra í dag að ríkisstjórn Bandaríkjanna hafi hag af því að halda Íslandi fyrir utan Evrópusambandið. Þá er því haldið fram að bandarískur ráðgjafi Nigel Farage, leiðtoga breska íhaldsflokksins UKIP, hafi sótt Ísland heim tvívegis á nýju ári.
Greint er frá því á norsku stjórnmálfréttasíðunni að heimildir sem standi nærri tilvonandi sendiherra Bandaríkjanna, að hann segi að Donald Trump vilji halda Íslandi fyrir utan ESB. Bandaríkin líti þannig á að það myndi skarast á við varnarhagsmuni landsins að Ísland gangi inn í ESB auk þess sem það gæti veikt lítillega viðskiptahagsmuni bandarísku þjóðarinnar gagnvart Íslandi. Í huga Bandaríkjanna séu viðskiptahagsmunir og varnarhagsmunir samofnir að því er fram kemur á norsku fréttasíðunni sem sérhæfir sig í stjórnmálafréttum.
Ráðgjafi Nigels á Íslandi?
Í greininni er einnig tekið fram að Miðflokkurinn hafi verið á fundum með Repúblikanaflokknum eins og Heimildin greindi …

















































Athugasemdir (3)