Starfsmenn Bifrastar ósammála um tilurð og tilgang FAB

Starfs­menn stjórn­sýslu og Fé­lags aka­demískra starfs­manna á Bif­röst eru ósam­mála um upp­runa deiln­anna sem stað­ið hafa yf­ir síð­ustu mán­uði. Starfs­menn stjórn­sýslu skól­ans telja fé­lag­ið hafa sprott­ið upp úr reiði vegna auk­inna gæðastaðla en með­lim­ir fé­lags­ins segja það af og frá. Enn er gild van­traust­stil­laga á hend­ur tveim­ur stjórn­end­um skól­ans.

Starfsmenn Bifrastar ósammála um tilurð og tilgang FAB

Mikið hefur gengið á í Háskólanum á Bifröst undanfarna mánuði. Í kjölfar þess að stjórnendur við skólann vísuðu ábendingu um meint brot þriggja fræðimanna til siðanefndar skólans lagði Félag akademískra starfsmanna við Háskólann á Bifröst (FAB) fram vantrauststillögu á hendur þremur stjórnendum. Rektor skólans sagði af sér í kjölfarið.

Heimildin hefur bæði rætt við starfsmenn innan stjórnsýslunnar og úr röðum FAB um þeirra sjónarmið sem eru nokkuð ólík. Fæstir viðmælendur vildu þó koma fram undir nafni. 

Fólk sem tilheyrir stjórnsýslunni lýsir því að Félag akademískra starfsmanna (FAB) hafi ekkert lögformlegt hlutverk innan skólans, enda sé til staðar samráðsvettvangurinn kennslu- og rannsóknarráð sem allir fastráðnir akademískir starfsmenn séu þegar hluti af. Vilja starfsmennirnir meina að FAB hafi verið stofnað vegna reiði sumra starfsmanna í kjölfar aukinna krafna til starfsfólks og hertra gæðareglna. 

Hanna Kristín Skaftadóttir, lektor og formaður FAB, segir hins vegar að félagið hafi verið stofnað að fyrirmynd svipaðs félags …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn
2
Stjórnmál

Greiddu fyrr­ver­andi odd­vita 7 millj­ón­ir eft­ir að Fram­sókn fékk bæj­ar­stjóra­stól­inn

Ný­stofn­að fé­lag Ág­ústs Bjarna Garð­ars­son­ar, fyrr­ver­andi odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafnar­firði, fékk greiðsl­ur fyr­ir ráð­gjafa­störf eft­ir að flokks­bróð­ir hans, Valdi­mar Víð­is­son, tók við sem bæj­ar­stjóri. Ráð­gjafa­störf fyrr­um bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, Har­ald­ur Sverris­son, hóf­ust í tíð Rósu Guð­bjarts­dótt­ur, flokks­syst­ur hans.
Frjálshyggjumenn úr viðskiptalífinu gefa „þekktum hugsuðum“ sviðið
4
Innlent

Frjáls­hyggju­menn úr við­skipta­líf­inu gefa „þekkt­um hugs­uð­um“ svið­ið

Stjórn­end­ur Reykja­vík Fin­tech og Bæj­ar­ins Beztu Pyls­ur hafa stofn­að við­burða­fyr­ir­tæki eft­ir að hafa hald­ið fyr­ir­lestra með Jor­d­an Peter­son. Fyrstu við­burð­irn­ir eru með Frosta Sig­ur­jóns­syni um lofts­lags­mál og Bjórkast­inu, hlað­varpi þar sem stjórn­end­ur kenna sig við öfga­hægri og „kyn­þátt­ar­aun­sæi“.

Mest lesið í mánuðinum

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
4
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.
Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn
6
Stjórnmál

Greiddu fyrr­ver­andi odd­vita 7 millj­ón­ir eft­ir að Fram­sókn fékk bæj­ar­stjóra­stól­inn

Ný­stofn­að fé­lag Ág­ústs Bjarna Garð­ars­son­ar, fyrr­ver­andi odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafnar­firði, fékk greiðsl­ur fyr­ir ráð­gjafa­störf eft­ir að flokks­bróð­ir hans, Valdi­mar Víð­is­son, tók við sem bæj­ar­stjóri. Ráð­gjafa­störf fyrr­um bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, Har­ald­ur Sverris­son, hóf­ust í tíð Rósu Guð­bjarts­dótt­ur, flokks­syst­ur hans.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár