Rannsóknarblaðamaðurinn Jane Mayer hjá The New Yorker segir í viðtali við Heimildina að huldufé bandarískra milljarðamæringa hafi greitt fyrir ferð háttsettra Repúblikana til að funda með formanni Miðflokksins og öðru áhrifafólki af hægri væng stjórnmála Norðurlanda síðasta sumar.
Í samtali við Heimildina segir hún að markmið milljarðamæringanna sé að draga úr trú almennings á að loftslagsbreytingar séu raunverulegar, enda hafi þeir mikilla hagsmuna að gæta í olíuiðnaðinum. Þá þrýsti þeir á minni takmarkanir á viðskiptafrelsi alþjóðlegra stórfyrirtækja og lægri skatta á þá ríku.
Mayer hefur rannsakað fjármál og spillingu í bandarískum stjórnmálum og hlotið fjölda verðlauna fyrir störf sín. Árið 2016 gaf hún út bókina Dark Money, þar sem hún skoðaði styrkveitingar bræðranna Charles og David Koch í stjórnmálum, en þeir eru meðal helstu aðila bak við net hugveitna og stofnana sem teygja anga sína til Íslands.
Eins og Heimildin hefur …



























Athugasemdir (2)