Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, neitaði sök fyrir þingnefnd í dag vegna vel skjalfestra tengsla sinna við Jeffrey Epstein, á sama tíma og demókratar reyna að beina athyglinni að tengslum Donalds Trump, núverandi Bandaríkjaforseta, við kynferðisbrotamanninn.
Clinton kemur víða fyrir í Epstein-skjölunum en heldur því fram að hann hafi slitið tengslum við milljarðamæringinn löngu fyrir dóm hans árið 2008 fyrir kynferðisbrot.
„Ég sá ekkert og gerði ekkert rangt,“ sagði Clinton í yfirlýsingu sinni sem hann deildi á samfélagsmiðlum og ætlaði að flytja við upphaf yfirheyrslnanna.
James Comer, formaður rannsóknarnefndar fulltrúadeildarinnar sem rannsakar Epstein og er úr röðum repúblikana, sagði fyrir yfirheyrslu yfir Bill Clinton að hann hlakkaði til að „spyrja margra spurninga“.
Demókratar í nefndinni ítrekuðu kröfu sína um að Trump yrði yfirheyrður.
Rangur forseti?
„Verum raunsæ, við erum að tala við rangan forseta,“ sagði Suhas Subramanyam, nefndarmaður demókrata.
Clinton nefndi Trump ekki beint en sagði að „enginn maður er hafinn yfir lögin, jafnvel ekki forsetar – sérstaklega ekki forsetar.“
Að vera nefndur í skjölunum sem bandaríska dómsmálaráðuneytið birti felur ekki í sér neina sök og Clinton hefur ekki verið sakaður um glæp eða verið formlega rannsakaður.
Hann kemur fyrir nefndina á eftir eiginkonu sinni, Hillary Clinton, fyrrverandi utanríkisráðherra, sem bar vitni í gær og krafðist þess af festu að Trump forseti – sem líkt og Bill Clinton hafði mörg tengsl við Epstein – kæmi fyrir nefndina.
Þingmennirnir ættu að spyrja Trump „beint undir eið um þau tugþúsund skipta sem hann kemur fyrir í Epstein-skjölunum,“ sagði hún.

Yfirheyrslurnar fara fram fyrir luktum dyrum og líkti Bill Clinton málsmeðferðinni við „sýndarréttarhöld“. Hjónin hafa krafist þess að þær verði opnar og sýndar í sjónvarpi.
Yfirheyrslan er áhættusamari fyrir fyrrverandi forsetann en eiginkonu hans, þar sem hann hefur viðurkennt mikil samskipti við Epstein en sagðist aldrei hafa heimsótt einkaeyju Epsteins í Karíbahafi.
Epstein umgekkst hina ríku, frægu og valdamiklu í heiminum og var dæmdur árið 2008 fyrir að kaupa kynlífsþjónustu af stúlkum allt niður í 14 ára aldur.
Hann lést í fangaklefa í New York árið 2019 á meðan hann beið réttarhalda vegna ákæru um mansal. Dánarorsök var úrskurðuð sjálfsvíg.
Eftirlitsnefnd fulltrúadeildarinnar, sem er undir forystu repúblikana, rannsakar þá sem tengdust Epstein í ljósi þess að dómsmálaráðuneytið hefur birt milljónir nýrra skjala sem tengjast rannsókn þess á honum.
Clinton-hjónin höfðu upphaflega hafnað stefnum sem kváðu þau til vitnisburðar, en valdahjónin úr röðum demókrata samþykktu að gera það eftir að repúblikanar í fulltrúadeildinni hótuðu að ákæra þau fyrir að sýna þinginu vanvirðingu.
Nýbirtar myndir
Hillary Clinton sagði í upphafsyfirlýsingu sinni til nefndarinnar að hún „réttlætti stefnu sína á hendur mér á grundvelli þeirrar forsendu að ég byggi yfir upplýsingum um rannsóknir á glæpsamlegri starfsemi Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell.“
„Leyfið mér að vera eins skýr og ég get. Ég bý ekki yfir þeim.“
Demókratar segja að rannsóknin sé notuð sem vopn til að ráðast á pólitíska andstæðinga Trumps frekar en að stunda lögmætt eftirlit.
Meðal áður óséðra ljósmynda úr skjölunum er ein sem sýnir Bill Clinton halla sér aftur í heitum potti, en hluti myndarinnar er hulinn með svörtum ferhyrningi.
Á annarri mynd sést Clinton synda við hlið dökkrar konu sem virðist vera Ghislaine Maxwell, vitorðsmaður Epsteins.
Bill Clinton hefur viðurkennt að hafa flogið með einkaþotu Epsteins nokkrum sinnum vegna mannúðarstarfs tengdu Clinton-stofnuninni, en Hillary sagðist ekki hafa þekkt Epstein.
„Jeffrey Epstein kom 17 sinnum í Hvíta húsið á meðan Bill Clinton var forseti. Við vitum að Bill Clinton flaug með flugvél Jeffrey Epsteins að minnsta kosti 27 sinnum. Þetta eru því spurningar sem við munum spyrja,“ sagði Comer.
Clinton sagði í upphafsyfirlýsingu sinni: „Ekki aðeins hefði ég ekki flogið með flugvél hans ef ég hefði haft minnsta grun um hvað hann var að gera – ég hefði tilkynnt hann.“
Yfirheyrslurnar fara fram í Chappaqua í New York, þar sem Clinton-hjónin búa.
Tugir blaðamanna hafa safnast saman í þessu ríkmannlega þorpi og leyniþjónustan hefur sett upp málmgirðingar í kringum listamiðstöðina þar sem yfirheyrslurnar fara fram.
Yfirlýsing Bills Clinton
Ég er hér í dag af tveimur ástæðum. Sú fyrri er að ég elska landið mitt. Og Bandaríkin voru byggð á þeirri hugmynd að enginn sé hafinn yfir lögin, ekki einu sinni forsetar – sérstaklega ekki forsetar.
Lýðræðið krefst þess að allir leggi sitt af mörkum og ég vona að með því að vera hér í dag getum við fært okkur aðeins lengra frá barmi hengiflugsins og aftur að því að vera land þar sem við getum verið ósammála á siðmenntaðan hátt – þar sem leitin að sannleika og réttlæti vegur þyngra en flokkspólitísk hvöt til að skora stig og skapa sjónarspil. Ég mun leggja mitt af mörkum og ég vona að þið gerið slíkt hið sama.
Seinni ástæðan fyrir því að ég er hér er sú að stúlkurnar og konurnar sem urðu fyrir því að Jeffrey Epstein eyðilagði líf þeirra, eiga ekki aðeins skilið réttlæti, heldur einnig að fá bót meina sinna. Þær hafa beðið of lengi eftir hvoru tveggja. Þótt stutt kynni mín af Epstein hafi endað mörgum árum áður en glæpir hans komu í ljós, og þótt ég hafi aldrei orðið vitni að neinu sem benti til þess hvað raunverulega var í gangi í okkar takmörkuðu samskiptum, er ég hér til að miðla því litla sem ég veit svo það geti komið í veg fyrir að nokkuð slíkt gerist aftur.
En áður en við byrjum verð ég að vera á persónulegum nótum. Þið létuð Hillary koma hingað. Hún hafði ekkert með Jeffrey Epstein að gera. Ekkert. Hún man ekki einu sinni eftir að hafa hitt hann. Hún ferðaðist hvorki með honum né heimsótti neina af eignum hans. Hvort sem þið stefnduð 10 manns eða 10.000, þá var einfaldlega ekki rétt að hafa hana með.
Við hófum þessa yfirheyrslu á því að ég lyfti hægri hendi og sór þess eið að segja sannleikann. En allir bera ábyrgð á því að vera heiðarlegir við þá sem þeir eru í forsvari fyrir. Hvort sem þið lyftuð hægri hendi eða ekki, þá skuldum við öll, hvert og eitt, bandarísku þjóðinni ekkert minna en sannleika og nákvæmni.
Nú skulum við fara yfir það sem þið munuð heyra frá mér.
Í fyrsta lagi hafði ég ekki hugmynd um þá glæpi sem Epstein var að fremja. Sama hversu margar myndir þið sýnið mér, þá hef ég tvennt sem skiptir meira máli í lok dags en ykkar túlkun á þessum 20 ára gömlu myndum.
Ég veit hvað ég sá, og það sem meira er, hvað ég sá ekki.
Ég veit hvað ég gerði, og það sem meira er, hvað ég gerði ekki.
Ég sá ekkert og ég gerði ekkert rangt.
Sem maneskja sem ólst upp á heimili þar sem heimilisofbeldi viðgekkst, hefði ég ekki aðeins látið vera að fljúga með flugvél hans ef ég hefði haft minnsta grun um hvað hann var að gera – ég hefði tilkynnt hann sjálfur og leitt baráttuna fyrir réttlæti vegna glæpa hans, ekki einhverra sérmeðferðarsamninga.
En jafnvel með fullkomnum baksýnisspegli sá ég ekkert sem fékk mig til að staldra við. Við erum aðeins hér vegna þess að hann faldi þetta svo vel fyrir öllum svo lengi. Og þegar það kom í ljós með játningu hans árið 2008, var ég löngu hættur að umgangast hann.
Þið munuð oft heyra mig segja að ég muni það ekki. Það kann að vera ófullnægjandi. En ég ætla ekki að segja eitthvað sem ég er ekki viss um. Þetta var allt fyrir löngu síðan. Og ég er bundinn af eiði mínum að geta mér ekki til eða giska. Þetta er ekki aðeins mér til hagsbóta, heldur hjálpar það ykkur ekki að ég leiki rannsóknarlögreglumann 24 árum síðar.
Þar sem ég er eiðsvarinn, mun ég ekki ranglega halda því fram að ég hlakki til spurninga ykkar. En ég er reiðubúinn að svara þeim eftir bestu getu, í samræmi við staðreyndir málsins eins og ég þekki þær: hinar réttmætu, rökréttu og jafnvel hinar fjarstæðukenndu.
Að því sögðu, herra formaður, skjóttu.
































Athugasemdir