Oddný Harðardóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, virðist gagnrýna núverandi forystu flokksins og stefnu hans í útlendingamálum.
Oddný rifjar upp viðtal Heimildarinnar við sig fyrir sléttum tveimur árum síðan í færslu á Facebook í dag. Fyrirsögn greinarinnar var tilvitnun í Oddnýju: „Við erum ekki að taka upp stefnu Sjálfstæðisflokksins í útlendingamálum“.
Hún birtir greinina í heild sinni á Facebook síðu sinni. „Þetta var fyrir nákvæmlega tveimur árum,“ skrifar Oddný. „Einhverjir gætu haldið því fram að þarna hafi ég ekki haft rétt fyrir mér.“
Heimdellingar fögnuðu orðum Kristrúnar
Viðtalið sem birt var 23. febrúar 2023 var tekið skömmu eftir að Kristrún Frostadóttir, núverandi formaður flokksins, fór í hlaðvarpið Eina pælingu og sagði að velferðarsamfélag þyrfti landamæri og að hún hefði skilning á áformum þáverandi dómsmálaráðherra um lokuð búsetuúrræði.
Orð Kristrúnar vöktu athygli og lýstu sumir samflokksmenn hennar yfir óánægju með afstöðu hennar. Fulltrúar Heimdallar, félagar ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, héldu því hins …















































Athugasemdir