Meloni og Merz: Nýtt ofurpar Evrópusambandsins

Gi­orgia Meloni, for­sæt­is­ráð­herra Ítal­íu, og Friedrich Merz, kansl­ari Þýska­lands, virð­ast kom­in lang­leið­ina með að mynda nýja kjöl­festu í Evr­ópu­sam­band­inu. Póli­tísk­ur óstöð­ug­leiki í Frakklandi og and­stað­an gegn Mercos­ur-samn­ingn­um hef­ur ýtt Emm­anu­el Macron út í horn.

Meloni og Merz: Nýtt ofurpar Evrópusambandsins
Vinir Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, og Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, virðast vera orðnir nánari samstarfsfélagar en Merz og Emmanuel Macron, forseti Frakklands. Hér eru þau öll þrjú á þingfundi leiðtogafundar G20-ríkjanna í Nasrec Expo Centre í Jóhannesarborg í nóvember 2025. Mynd: Leon Neal / AFP

Í málum allt frá viðskiptasamningum til bílaiðnaðarins hafa Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, og Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, í auknum mæli sameinað krafta sína til að stýra stefnumálum Evrópusambandsins – og hafa um leið tekið þá áhættu að ýta Emmanuel Macron Frakklandsforseta til hliðar.

Á leiðtogafundi ESB í dag munu Meloni, sem er lengst til hægri, og Merz, sem er íhaldssamur, leggja áherslu á sameiginlega sýn á að efla samkeppnishæfni ESB. Þetta er nýjasta merkið um vaxandi samstarf ítalskra og þýskra stjórnvalda, sem setur spurningamerki við stöðu hins hefðbundna bandalags Frakklands og Þýskalands.

„Sumir álitsgjafar segja að 2026 verði ár Ítalíu og Þýskalands,“ sagði Meloni í síðasta mánuði á leiðtogafundi með Merz í Róm. „Við ætlum að leggja allt í sölurnar ... til að treysta vináttu sem er stefnumarkandi ekki aðeins fyrir þjóðir okkar, heldur fyrir Evrópu í heild.“

Leiðtogarnir tveir hafa lengi deilt harðri afstöðu til fólksflutninga, en samþykktu á …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
5
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár