Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í Reykjavík

Ari Edwald hef­ur sagt skil­ið við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og leið­ir Mið­flokk­inn í Reykja­vík fyr­ir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar. Hann er með lög­heim­ili í Portúgal en bú­sett­ur í Garða­bæ.

Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í Reykjavík

Ari Edwald leiðir lista Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hann sendi frá sér á Facebook. Þar segist hann hafa tekið áskorun uppstillingarnefndar flokksins og telji reynslu sína úr atvinnulífi, félagasamtökum og stjórnmálum nýtast vel í verkefnum borgarinnar.

Ari, sem lengi hefur verið kenndur við Sjálfstæðisflokkinn, segir pólitískar áherslur sínar ekki hafa breyst en að hann finni nú mestan samhljóm með Miðflokknum og treysti honum best til að hrinda sínum hugmyndum í framkvæmd.

Ari var um tíma aðstoðarmaður Þorsteins Pálssonar, fyrrverandi ráðherra og formanns Sjálfstæðisflokks. Þorsteinn hefur líka yfirgefið Sjálfstæðisflokkinn en hann gekk til liðs við Viðreisn. 

Ari segist hafa sterkar skoðanir á borgarmálum og nefnir sérstaklega skipulagsmál, rekstur grunnþjónustu og samgöngur. Hann gagnrýnir það sem hann kallar „ofurþéttingarstefnu“ og áform um Borgarlínu og telur að borgarbúar hafi ekki verið nægilega hafðir með í ráðum.

Í tilkynningunni segir Ari leikskólakerfið bregðast fjölskyldum, þörf sé á …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Hann er greinilega kominn í félagsskap sem hæfir.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Funduðu með einni umdeildustu hugveitu heims
4
StjórnmálMAGA-tengingar Miðflokksins

Fund­uðu með einni um­deild­ustu hug­veitu heims

Þing­menn Mið­flokks­ins fund­uðu með Her­ita­ge Foundati­on, hug­veit­unni sem samdi hina um­deildu áætl­un Proj­ect 2025 um end­ur­skipu­lagn­ingu banda­ríska rík­is­ins. Sig­ríð­ur And­er­sen, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, seg­ir erfitt að fá áheyrn, því hafi flokk­ur­inn leit­að til ráð­gjafa Nig­el Fara­ge til þess að tengj­ast banda­rísk­um stjórn­mál­um.

Mest lesið í mánuðinum

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
5
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.
„Ég var ofbeldisfullur“
6
ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var of­beld­is­full­ur“

Þeg­ar Embla Kristjáns­dótt­ir hóf sam­búð með Niels Thomassen fékk hún að kynn­ast nýrri hlið á mann­in­um sem hún elsk­aði, þar sem stjórn­semi, af­brýði­semi og reiði réðu ríkj­um. Hann gekkst við of­beld­inu, axl­aði ábyrgð og hef­ur unn­ið þrot­laust í sjálf­um sér síð­asta ára­tug. Nú miðl­ar hann reynslu sinni og hvet­ur aðra karl­menn sem glíma við sama vanda að tjá til­finn­ing­ar sín­ar og standa ber­skjald­að­ir.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár