Í síðasta blaði hóf ég að segja frá örlagaríkustu sjóorrustum heimsins. Ég var búinn að afgreiða orrusturnar í sjöunda til tíunda sæti og þá er komið að því sjötta. Og þar er um að ræða mikinn slag, raunar einhverja ótrúlegustu sjóorrustu sögunnar, sem hafði víðtæk og mikil áhrif, en þið hafið sennilega aldrei heyrt minnst á.
Það er orrustan við Myeongnyang.
Hún var háð þann 26. október 1597 og var hluti af svonefndu Imjin-stríði sem hófst nokkrum fyrr er Japanir réðust inn í Kóreu.
Japanir gera innrás
Í Japan var þá að ljúka aldarlöngu grimmilegu borgarastríði og stríðsherrann Toyotomi Hideyoshi, sem var æðstur valdsmanna í landinu, vildi hrista fylkingar saman og fá óstýrilátum hermönnum eitthvað að fást við annað en að vera með vesen innanlands, svo hann ákvað að fara í herferð til Kóreu.
Þar var gamalgróið konungsveldi sem hafði í tvær aldir verið undir stjórn Joseon-ættarinnar. Menning var …













































Athugasemdir