Fimm fyrirtæki ábyrg fyrir fjörutíu prósentum af heildarlosun Íslands

Ál- og kís­il­verin ásamt Icelandair eru stærstu los­endur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Íslandi. Tæp fjöru­tíu pró­sent af heild­ar­losun án land­notk­unar má rekja til fram­leiðslu málma. Á alþjóða­vísu bera 32 fyr­ir­tæki ábyrgð á helm­ingi allrar los­unar heims­ins.

Fimm fyrirtæki ábyrg fyrir fjörutíu prósentum af heildarlosun Íslands

Alcoa Fjarðaál, Norðurál, Icelandair, Elkem og Rio Tinto Alcan eru þau fyr­ir­tæki sem losa mest af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum á Íslandi, eða sam­an­lagt 2,1 milljón tonn af koldí­oxíðí­gildum, eða CO2-íg.

Fyr­ir­tækin eru öll innan ETS-kerf­is­ins, við­skipta­kerfi Evr­ópu­sam­bands­ins með los­un­ar­heim­ildir. Umhverfis- og orku­stofnun fer með umsjón kerf­is­ins hér á landi og heldur utan um losun fyr­ir­tækj­anna. Fyrir utan Ísland taka Noregur, Liechtenstein og auð­vitað aðilda­ríki ESB þátt.

Ál- og kís­il­verin eru í fimm af sex efstu sæt­unum en í hóp­inn bæt­ist PCC Bakki sem lagð­ist að mestu leyti af í fyrra. Þegar litið er til heild­ar­los­unar Íslands án land­notk­unar fyrir árið 2024 var hún 4,8 milljón tonn af CO2-íg en ál- og kís­il­verin fimm stóðu á bak við tæp 40 pró­sent af þeirri losun. Hlut­deild Icelandair er ekki tekin með hér þar sem alþjóða­flug reikn­ast ekki til heild­ar­los­unar Íslands.

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Við eigum góða möguleika á að snúa þessu við: Með aukinni skógrækt gætum við bundið mikið af koltvísýringi. Barrskógar binda nálægt 8-10 tonn af þessu efni og breyta í vatn og súrefni.
    0
  • Geir Gudmundsson skrifaði
    Þarna hefur nú eitthvað skolast til því skv. loftslagsbókhaldi Íslands sem Umhverfis- og orkustofun haldur utan um, þá er losun frá staðbundum iðnaði 1,9 milljón tonn, en ekki 2,1 milljón tonn.
    https://ust.is/loft/losun-grodurhusalofttegunda/bradabirgdatolur-um-losun-grodurhusalofttegunda-2024/
    Svo var losun íslenskra flugfélag innan ETS-kerfis ESB um 636 þús tonn, en við bætist svo losun innan Bretlands og Sviss, sem bæði reka eigið ETS kerfi, sem er beintengt því sem gildir innan EES.
    Þannig var losun frá flugi Icelandair 445 þús tonn innan ESB-ETS, en 492 þús tonn samtals þegar losun Icelandair frá Bretland og Sviss eru tekin með. Icelandair losar svo yfir tæplega 1,2 milljón tonn CO2 árlega fyrir alla sína starfsemi, sem slagar upp í losun frá stóriðjunni. Eitt skipafélag sem skráð er á Íslandi, Eimskip, losar svo 280 þús tonn, þar af tæp 100 þús tonn sem falla undir ETS kerfið.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Hitabylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur
Umhverfið

Hita­bylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur

„Það er mjög lík­legt að árið í ár verði eitt heitasta árið á öld­inni og næsta ár líka,“ segir Halldór Björns­son, haf- og veð­ur­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands. Sól­þyrstir Íslend­ingar þurfa að huga að því að skipu­leggja sum­ar­frí sín út frá hita­bylgjum. Yfir­stand­andi hita­bylgju í Evrópu má tengja við AMOC-velti­hringrás­ina segir vís­inda­mað­ur­inn Stefan Rahms­torf.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár