„Ísland gæti verið næst“

Aaja Chemnitz er full­trúi Græn­lands á danska þing­inu. Þar berst hún fyr­ir auknu jafn­ræði á milli þjóð­anna, rétt­ind­um og vel­ferð Græn­lend­inga sem þurfa að tak­ast á við marg­vís­leg­ar áskor­an­ir. Hún seg­ir mik­il­vægt að Græn­lend­ing­ar öðlist allt í senn efna­hags­legt og póli­tískt sjálf­stæði.

„Ísland gæti verið næst“

Tæpum klukkutíma eftir að Aaja Chemnitz lendir í Nuuk hefur hún mælt sér mót við blaðamenn Heimildarinnar á kaffihúsi menningarmiðstöðvarinnar. Farangurinn liggur við fætur hennar, en hún var að koma frá Danmörku þar sem hún er annar tveggja fulltrúa grænlenska þingsins. Áður sat hún á þingi Grænlendinga, en undanfarin sjö ár hefur hún talað máli þeirra í Danmörku. „Mér finnst það áhugavert. Þetta er mjög menningarnæmt, að vera í suðupotti þessara tveggja menningarheima sem eru eins ólíkir og hægt er, hvort sem um er að ræða menningu, tungumál eða lífshætti, þá er mikill munur á Dönum og Grænlendingum.“

Hún biður um smástund til þess að ljúka við tebollann og taka stöðuna. Þar sem hún situr ein við borðið og drekkur í rólegheitunum virðist allt vera með kyrrum kjörum, en hún er engu að síður stödd í miðju stormsins.

Fyrr um morguninn hafði hún lýst því á Facebook hvað allt gerist …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Landið sem enginn á

Rödd framtíðarinnar – lifði af sjálfsvígstilraun
ViðtalLandið sem enginn á

Rödd fram­tíð­ar­inn­ar – lifði af sjálfs­vígstilraun

Aqqalukkuluk Fontain býr yf­ir rödd sem hann nýt­ir til þess að miðla upp­lýs­ing­um, grein­ing­um og hugs­un­um til samlanda sinna. Hann er hin nýja rödd Græn­lands, ung­ur hug­sjóna­mað­ur sem nýt­ir sam­fé­lags­miðl­ana til að fá fólk til að hugsa og setja hlut­ina í rétt sam­hengi. Og eft­ir að hafa lif­að af sjálfs­vígstilraun hjálp­ar hann öðr­um til að lifa af – og tala um til­finn­ing­ar.
„Ég var ofbeldisfullur“
ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var of­beld­is­full­ur“

Þeg­ar Embla Kristjáns­dótt­ir hóf sam­búð með Niels Thomassen fékk hún að kynn­ast nýrri hlið á mann­in­um sem hún elsk­aði, þar sem stjórn­semi, af­brýði­semi og reiði réðu ríkj­um. Hann gekkst við of­beld­inu, axl­aði ábyrgð og hef­ur unn­ið þrot­laust í sjálf­um sér síð­asta ára­tug. Nú miðl­ar hann reynslu sinni og hvet­ur aðra karl­menn sem glíma við sama vanda að tjá til­finn­ing­ar sín­ar og standa ber­skjald­að­ir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár