Hver er raunverulegur fjöldi kvenna á örorkulífeyri?

Því hef­ur ver­ið hald­ið fram að allt að 23 pró­sent kvenna sé á ör­orku­líf­eyri hér á landi. Hið rétta er að 13,5 pró­sent kvenna eru á ör­orku- eða end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri og 8 pró­sent karla. Hlut­fall milli kvenna og karla á ör­orku­líf­eyri hef­ur hald­ist það sama í ára­tugi en ör­orku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þeg­um hef­ur al­mennt fjölg­að.

Hver er raunverulegur fjöldi kvenna á örorkulífeyri?
Fleiri konur en karlar Hlutfallið milli karla og kvenna á örorkulífeyri hefur haldist svipað. Stærstur munur er í aldursflokknum 60-66 ára. Mynd: Golli

Umræða um hátt hlutfall kvenna á örorkulífeyri hefur verið áberandi nú í byrjun árs og því hefur verið haldið fram að um fjórðungur kvenna á Íslandi sé á örorkulífeyri. 

„23% kvenna á Íslandi, næstum ein af hverjum fjórum, eru á öryrkjabótum eða öryrkjalífeyri,“ segir í hástöfum í Facebook-færslu Taxý Hönter.

Sama er upp á teningnum hjá Helga Bjarnasyni, öðrum þáttastjórnanda hlaðvarpsins Bjórkast. Í nýlegum þætti lýsir Arnar Þór Jónsson, gestur þáttarins, því hvernig búið sé að skapa kerfi sem er „helsjúkt af sósíalisma.“ Í því samhengi fullyrðir Helgi að á Íslandi séu 23 prósent kvenna öryrkjar og 13 prósent karla.

Báðir vísa í Róbert Bragason, sérfræðing hjá Samtökum skattgreiðenda, sem ræddi örorkulífeyri meðal annars í hlaðvarpinu Skattaspjallið í janúar en samtökin höfðu tekið umrædda tölfræði saman. „Á móti hverjum íslenskum karlkyns öryrkja eru tveir kvenkyns öryrkjar,“ segir Róbert í þættinum.

Heimildin fór yfir staðreyndir málsins og setti í samhengi …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Staðreyndavaktin

Mest lesið

Sautján hætt ári eftir framkvæmdastjóraskipti
3
Innlent

Sautján hætt ári eft­ir fram­kvæmda­stjóra­skipti

Nokkr­ir starfs­menn Sól­heima í Gríms­nesi hafa lýst yf­ir óánægju með stjórn­ar­hætti síð­an fram­kvæmda­stjóra var skipt út fyr­ir ári og nokk­ur fjöldi hef­ur sagt skil­ið við stað­inn. „Það er bara skelfi­legt ástand,“ seg­ir starfs­mað­ur um breyt­ing­una á starfs­anda. Stjórn­ar­formað­ur Sól­heima seg­ir hins veg­ar mikla ánægju með rekst­ur­inn og starfs­manna­velt­una ekki óeðli­lega.
„Við getum ekki borðað peninga“
6
ViðtalLandið sem enginn á

„Við get­um ekki borð­að pen­inga“

„Tungu­mál­ið er sjálfs­mynd okk­ar,“ seg­ir Miite Geisler, frum­kvöð­ull og þátt­tak­andi í menn­ing­ar- og við­skipta­lífi Græn­lands. Sem barn flakk­aði hún um með veiði­mann­in­um föð­ur sín­um og mót­að­ist af nátt­úr­unni. „Við færð­um okk­ur til eft­ir veðri, veið­um og að­stæð­um,“ seg­ir hún. Og það var ekki ferða­lag held­ur lífs­bar­átta. Þessi sjálf­stæða kona er al­in upp við ást, saga henn­ar er vitn­is­burð­ur um hvernig ást efl­ir sjálf­stæði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár