Vitni í Minneapolis: „Ég horfði á hann deyja“

„Þetta var morð fyr­ir allra aug­um, úti á miðri götu,“ seg­ir Stella Carl­son sem varð vitni að því þeg­ar ICE-lið­ar skutu Al­ex Pretti til bana í Minn­ea­pol­is á laug­ar­dag. Hún seg­ir lýs­ing­ar rík­is­stjórn­ar Don­alds Trumps um mál­ið ósann­ar.

Vitni í Minneapolis: „Ég horfði á hann deyja“
Stella Carlson Varð vitni að því þegar ICE-liðar skutu Alex Pretti til bana. Mynd: CNN / Skjáskot

„Ég horfði á hann deyja,“ segir Stella Carlson með tárin í augunum í viðtali við Anderson Cooper á CNN.

Hún varð vitni að því þegar ICE-liðar skutu Alex Pretti til bana í Minneapolis síðastliðinn laugardag. Carlson segir Pretti ekki hafa verið ógn við öryggi ICE-liða. „Þetta var morð fyrir allra augum, úti á miðri götu,“ segir hún. Pretti var 37 ára gamall hjúkrunarfræðingur og bandarískur ríkisborgari.

Carlson var ein af þeim sem tóku aðdraganda morðsins og morðið sjálft upp á myndband sem hægt verður að notast við sem sönnunargagn í rannsókn á málinu. Hún hafði sést á öðrum upptökum af morðinu og var kölluð „konan í bleika jakkanum“ en ákvað að stíga fram. „Ég trúi því að Bandaríkin vilji heyra sannleikann.“

Alex PrettiVar skotinn til bana af ICE-liðum í Minneapolis.

Lýsingar yfirvalda ósannar

Ríkisstjórn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta varði árás ICE-liða en Kristi Noem heimavarnarráðherra Bandaríkjanna sagði …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Vinstri byltingin sem varð ekki: Af hverju sameinaðist vinstrið ekki í borginni?
3
Greining

Vinstri bylt­ing­in sem varð ekki: Af hverju sam­ein­að­ist vinstr­ið ekki í borg­inni?

Vinstri græn, Sósí­al­ist­ar og Pírat­ar eru sam­an­lagt með fimmtán pró­senta fylgi í borg­inni. Hvor í sínu lagi gætu þeir hins veg­ar ver­ið í fall­bar­áttu. Til­raun­ir voru gerð­ar til að ná sam­an um sam­eig­in­legt fram­boð fyr­ir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar, und­ir for­ystu sósí­al­ist­ans Sönnu Magda­lenu Mörtu­dótt­ur. Van­traust og skort­ur á mál­efna­legri sam­leið kom í veg fyr­ir það.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Umdeild gjaldskylda við Reykjanesvita: „Þetta er bara slóði“
2
UmhverfiðFerðamannalandið Ísland

Um­deild gjald­skylda við Reykja­nes­vita: „Þetta er bara slóði“

Sam­kvæmt lóða­leigu­samn­ingi hef­ur fyr­ir­tæk­ið Reykja­nes Aur­ora heim­ild til að inn­heimta bíla­stæða­gjöld í 500 metra radíus við Reykja­nes­vita þrátt fyr­ir að leigja að­eins hluta af því landi. Eig­and­inn seg­ir að reynt hafi ver­ið á gjald­heimt­una fyr­ir dómi og hún úr­skurð­uð hon­um í vil. „Þetta er bú­ið að vera vand­ræða­mál,“ seg­ir Kjart­an Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæj­ar.
Langþráður draumur um búskap rættist
4
Innlent

Lang­þráð­ur draum­ur um bú­skap rætt­ist

Par­ið Víf­ill Ei­ríks­son og Al­ej­andra Soto Her­nández voru orð­in þreytt á borg­ar­líf­inu í Reykja­vík og höfðu auga­stað á bú­skap á lands­byggð­inni. Eft­ir stutta íhug­un festu þau kaup á bæn­um Syðra-Holti í Svarf­að­ar­dal ár­ið 2021 og fluttu þang­að ásamt for­eldr­um Víf­ils, þeim Ei­ríki Gunn­ars­syni og In­ger Steins­son og syst­ur hans, Ilmi Ei­ríks­dótt­ur. Þar rækta þau græn­meti á líf­ræn­an máta und­ir nafn­inu „Yrkja Svarf­að­ar­dal” og stefna á sauða­mjólk­ur­fram­leiðslu á næstu miss­er­um.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár