Drápu aftur og ásaka hinn látna um hryðjuverk

ICE-sveitir Donalds Trump skutu í dag 37 ára gamlan hjúkr­un­ar­fræð­ing níu sinnum. Hægri hönd Trumps kallar hann inn­lendan hryðju­verka­mann. Myndband gengur gegn frá­sögn stjórn­valda.

Drápu aftur og ásaka hinn látna um hryðjuverk
Alex Pretti Hóf að taka þátt í mót­mælum eftir að full­trúar ICE skutu til bana Renee Good í Minn­ea­polis fyrr í mán­uð­inum. Mynd: Wikipedia

Inn­flytj­enda­lög­regla Banda­ríkj­anna (ICE) sem Donald Trump for­seti hefur byggt upp og reynir nú að stækka veru­lega, drap í dag aðra mann­eskju í borg­inni Minn­ea­polis, sem er undir stjórn Demókrata. 

Myndband sýnir að mað­ur­inn reynir að koma á milli þegar full­trúar ICE ganga hart fram gagn­vart konu, en hann er bar­inn áður en hann er skot­inn níu sinnum liggj­andi í jörð­inni.

Maðurinn hét Alex Pretti, var 37 ára gam­all, og starf­aði sem hjúkr­un­ar­fræð­ingur fyrir fyrr­ver­andi her­menn.

Viðbrögð for­set­ans í dag voru að stað­hæfa að mun verra hefði gerst en það sem átti sér stað í dag, ef ICE hefði ekki hand­tekið og flutt burt fjölda fólks upp á síðkastið, þar sem sumir hinna hand­teknu væru ofbeld­is­fullir.

Hvíta húsið birti í dag mynd af skamm­byssu sem yfir­völd segja Pretti hafa haft á sér þegar hann var skot­inn. Hins vegar hafði hann leyfi fyrir því að ganga með byss­una á sér.

Hægri hönd for­set­ans, þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjaf­inn Stephen Miller, full­yrti án þess að rann­sókn hefði farið fram, að „inn­lendur hryðju­verka­maður“ hefði verið skot­inn eftir að hafa reynt „að ráða af dögum alrík­is­lög­reglu­mann“.

Myndbönd af vett­vangi sýna hins vegar að hann Pretti hafði sím­ann sinn á lofti, var að hjálpa konu sem ICE-liði hrinti í jörð­ina og var hann bæði lam­inn af lög­reglu­mönn­unum og skot­inn liggj­andi.

Með­fylgj­andi myndönd frá almenn­ingi á vett­vangi sýna atburða­rás­ina frá mis­mun­andi hliðum, en þau geta reynst erfið áhorfs. 

Sam­starfs­maður Pretti seg­ist í sam­tali við fjöl­miðla í dag vera steini lost­inn.

„Hann vildi hjálpa fólki,“ sagði Dimitri Drekonja, yfir­maður smit­sjúk­dóma á VA-spít­al­anum og pró­fessor í lækn­is­fræði við Háskól­ann í Minnesota, sem vann með Pretti á spít­al­anum og að rann­sókn­ar­verk­efni. „Hann var ofboðs­lega almenni­legur og hjálp­samur – hann hugs­aði vel um sjúk­ling­ana sína. Ég er bara steini lost­inn.“

Hann lýsti Pretti sem „fram­úr­skar­andi“ hjúkr­un­ar­fræð­ingi og dugn­að­ar­forki, húmor­ískum og færum um að drífa fólk með sér. „Hann var svo frá­bær náungi,“ sagði Drekonja við Guardian. „Ég hafði bara svo gaman af því að vinna með honum.“

Michael Pretti, faðir Alex, tók undir mat Drekonja og lýsti syni sínum fyrir Associated Press sem ein­hverjum sem „þótti inni­lega vænt um fólk og var mjög í upp­námi yfir því sem var að ger­ast í Minn­ea­polis og um öll Banda­ríkin með ICE, eins og millj­ónir ann­arra eru í upp­námi yfir.“

„Honum fannst að með því að mót­mæla gæti hann sýnt umhyggju sína fyrir öðrum,“ sagði Pretti eldri.

Faðir Prettis stað­festi við AP að sonur hans hefði tekið þátt í mót­mælum í kjöl­far þess að Renee Good var drepin af lög­reglu­manni frá banda­rísku útlend­inga- og toll­gæsl­unni (ICE) fyrr í þessum mán­uði.

Sam­ein­uðu þjóð­irnar fóru fyrr í mán­uð­inum fram á óháða rann­sókn á drápi ICE á Renee Nicole Good vegna við­bragða yfir­valda, sem komust að nið­ur­stöðu án rann­sóknar.

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Íútlöndum er hvergi skjóleilifur siveðrandi og betra er heima setið en af stað farið
    0
  • ÓRÁ
    Óli Rúnar Ástþórsson skrifaði
    Er einhver munur á meðferð almennings í Íran og USA?
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár