Billy Long biðst afsökunar: „Það var engin alvara í þessu“

Billy Long, sem Don­ald Trump hef­ur til­nefnt sem sendi­herra á Ís­landi, seg­ir enga al­vöru að baki um­mæl­um sín­um um að gera Ís­land að 52. ríki Banda­ríkj­anna. Um­mæl­in hafa vak­ið reiði með­al Ís­lend­inga.

Billy Long biðst afsökunar: „Það var engin alvara í þessu“
Billy Long, sendiherraefni, baðst afsökunar.

Billy Long, sendiherraefni Donalds Trump fyrir Ísland og fyrrverandi þingmaður í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, hefur beðist afsökunar á ummælum sínum um að gera Ísland að 52. ríki Bandaríkjanna þar sem hann yrði ríkisstjóri. 

„Það var engin alvara í þessu. Ég var með fólki sem ég hafði ekki hitt í þrjú ár og þau voru að grínast með að gera Jeff Landry [sérstakan erindreka Bandaríkjanna gagnvart Grænlandi] að ríkisstjóra Grænlands. Þau fóru þá að grínast um mig og ef einhver tók því illa biðst ég afsökunar,“ sagði Long við miðilinn Arctic Today.  

Bandaríski miðillinn Politico greindi frá ummælum Long í gær en þau voru látin falla í óformlegu tali hans við þingmenn í bandaríska þinginu. 

Undirskriftasöfnun gegn Long

Fyrr í dag greindi RÚV frá því að utanríkisráðuneytið hefði haft samband við bandaríska sendiráðið vegna ummælanna. Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, gagnrýndi tal Longs harðlega í störfum þingsins fyrr í dag og sagði …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Hópurinn í kring um T. segir eitt og annað og oft mótsagnakennt. Við slíkar aðstæður ber allt að taka alvarlegt sem er sagt.
    Auk þess er það í millitíðinni þekkt bragð hægri manna að slengja fram einhverju og snúa svo út úr því og kalla það "bara grín".
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Það er engin iðrun í þessari afsökunarbeiðni, enda fullkomlega óviðeigandi af tilvonandi sendiherra að vera með aulabrandara af þessu tagi. Maðurinn á ekkert erindi til Íslands.
    2
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    This wasn't by accident or a joke! These thoughts originate from the prevailing "Zeitgeist" in today's US! In this context there is a lot of talk all around! Better take it serious and be prepared!
    2
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Hann lítur út fyrir að vera með greindarvísitölu upp á um 40, borðar mikið af kartöfluflögum og hendir tómum bjórdósum sínum í vegkantinn... Það var engin alvara í þessu, ég var bara að grínast.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár