Hugmyndin að versluninni kviknaði hjá Thelmu að hennar sögn eftir að dönsk kona að nafni Louise kom hingað til landsins og hélt námskeið fyrir hestafólk.
„Louise er að byggja upp á Spáni það sem kallast á ensku Paddock paradise sem er svæði með afgirtum slóðum sem stuðla að því að hestar hreyfa sig meira, þeir borða á einum stað og drekka á öðrum stað til að mynda. Svo er annar aðili sem heitir Jamie Jackson, hann hefur skoðað vel svokallaða Mustang-hesta. Þeir eru frjálsir, á söndum þar sem er lítið af fóðri og þykja þeir hestar vera með mjög góða hófa. Það er mikið verið að járna hérna og hestar ganga frjálsir í girðingum og hófarnir vaxa og verða flatir. Þegar það er verið að járna almennt þá er verið að jafna hófinn og láta hann vera hlutfallslega réttan svo það reyni ekki á liði og vöðva. En þessir hestar …















































Athugasemdir