Þolendur Epsteins og þingmenn gagnrýna yfirstrikanir

„Erum við að vernda þolendur eða erum við að vernda þessa úrvalskarla? Allt ferlið við að vera gegn­sætt sner­ist um að yfir­strika aðeins nöfn þolenda og fórn­ar­lamba,“ spyr einn af þolendum Jeffrey Epstein.

Þolendur Epsteins og þingmenn gagnrýna yfirstrikanir
Tengdur Jeffrey Epstein var vel tengdur og má finna myndir af fjöl­mörgum valda miklum mönnum í þeim skjölum sem birt hafa verið. Mynd: MCMULLAN CO/SIPA

Þolendur dæmda kyn­ferð­is­af­brota­manns­ins Jeffrey Epstein hafa lýst yfir reiði sinni eftir að skjöl úr málum gegn honum, sem lengi hefur verið kallað eftir að komi fram í dags­ljósið, voru birt. Búið var að strika út fjölda síðna og rit­skoða myndir. 

Í skjöl­unum sem banda­ríska dóms­mála­ráðu­neytið birti voru myndir af Bill Clinton, fyrr­ver­andi for­seta, og öðrum þekktum ein­stak­lingum úr ríkum vina­hópi Epsteins, þar á meðal Mick Jagger og Michael Jackson.

En yfir­strik­anir á mörgum skjal­anna ýttu undir efa­semdir um að birt­ingin myndi þagga niður í sam­sær­is­kenn­ingum um yfir­hylm­ingu á æðstu stöðum.

„Birtið bara skjölin og hættið að strika yfir nöfn sem ekki þarf að yfir­strika,“ sagði Marina Lacerda, ein af þeim sem ásak­aði Epstein, í sam­tali við CBS.

„Erum við að vernda þolendur eða erum við að vernda þessa úrvalskarla? Allt ferlið við að vera gegn­sætt sner­ist um að yfir­strika aðeins nöfn þolenda og fórn­ar­lamba.“

…
Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Epstein-skjölin

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár