„Allt í einu koma þessi skrímsli upp úr jörðinni“

Und­ir­skrifta­söfnun er hafin til að mómæla fram­kvæmdum í Skafta­felli. Fundur um breyt­ingar fram­kvæmd­anna var hald­inn um hásumar. „Það dugði til að gera skyldu sína,“ segir íbúi á svæð­inu. Íbúar ótt­ast að sam­keppn­is­hæfni muni minnka ef fyr­ir­huguð ferða­gist­ing rís. „Ég sé ekki annað en að þetta auki tekjur og atvinnu á svæð­inu,“ segir Pálmar Harð­ar­son, sem stendur að fram­kvæmd­inni ásamt Arctic Adventures.

„Allt í einu koma þessi skrímsli upp úr jörðinni“
Húsin burt Und­ir­skrifasöfnun stendur yfir í mót­mæla­skyni við fram­kvæmd­ina. Mynd: Jón Ágúst Guðjónsson

„Manni finnst svo­lítið sorg­legt að það hafi ekki verið lagt meira upp úr ásýnd­inni. Upp­lifunin er að þetta sé bara fyrir gróða og ekki verið að reyna að gera vel, að það sé engin hug­sjón á bak við þetta,“ segir Svanhvít Helga Jóhanns­dóttir um upp­bygg­ingu sem hafin er í Skafta­felli. 

Svanhvít er meðal íbúa í Öræfum sem flest hafa verið veru­lega gagn­rýnin á fram­kvæmd­ina sem er mun stærri í sniðum en upp­haf­lega var sam­þykkt. Komið hefur verið á fót und­ir­skrifta­söfnun inn á Ísland.is sem er titluð Stöðvum fram­kvæmdir fyrir framan Skafta­fell. 

Sjötíu húsGert er ráð fyrir að sjö­tíu hús rísi á svæð­inu.

Þar kemur fram að and­staða hafi verið gagn­vart áformum um að byggja sjö­tíu smá­hýsi, tíu ein­býl­is­hús og þrjár þjón­ustu­bygg­ingar, „les­ist hótel“, segir í text­anum. Því hafi verið sam­þykkt að minnka bygg­ing­ar­magn niður í 35 hús. Fram­kvæmd­inni var því ætlað að fara úr 5.200 fer­metrum …

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TLS
    Tryggvi L. Skjaldarson skrifaði
    Til hvers að hafa skipulagsyfirvöld ef svona klúður fær að standa?
    0
  • MÖG
    Magni Örvar Guðmundsson skrifaði
    Mikið djöffull eru þetta ljótir kofar, það er ekki einu sinni hægt að líkja þessu við neitt nema hænsnakofa að húsabaki, sem byggður er úr afgangs spýtnarusli í neyð. Það er engin virðing borinn fyrir umhverfinu í þessum arkitektúr. Sem betur fer bý ég á hinu horni landsins og kem því varla til að sjá þessa hörmung.
    2
  • ÁJ
    Ástþór Jóhannsson skrifaði
    Hryggileg er hún stóriðjuvæðing ferðaþjónustunnar þar sem "athafnabestíurnar" eira engu en riðjast inn á friðlýst svæði (með velvilja skammsýnna og gráðugra sveitastjórna) eða í skásta falli upp að mörkum þeirra, hvert sem litið er.
    2
  • Einar Hjartarson skrifaði
    "svefnloft" Merkilegt að Stefán eigi hlut að þessu klúðri.
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Ríkisstjórnin á að sjá um að þessir kumbaldar verði rifnir niður.
    Náttáran á að sjá um sig sjálf, en ekki einhverjir kumpánar sem ekkert sjá nema peninga
    fyrir sig
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár