Aldrei lægra hlutfall landsmanna í þjóðkirkjunni

Þeim fjölg­ar sem eru skráð ut­an trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga en 54,5 pró­sent lands­manna voru í þjóð­kirkj­unni í byrj­un des­em­ber í ár. Mest fjölg­aði í Kaþ­ólsku kirkj­unni milli ára.

Aldrei lægra hlutfall landsmanna í þjóðkirkjunni
Neskirkja Aldrei hefur jafn lítill hluti landsmanna verið skráður í þjóðkirkjuna. Mynd: Golli

Alls voru 224.056 skráð í þjóðkirkjuna 1. desember síðastliðinn samkvæmt skráningu Þjóðskrár. Er það um 54,5 prósent landsmanna en aldrei hefur jafn lítill hluti landsmanna verið skráður í þjóðkirkjuna.

Til samanburðar var 65,2 prósent landsmanna í þjóðkirkjunni 1. desember árið 2019. Þjóðkirkjan er fjölmennasta trú- og lífsskoðunarfélag landsins en næst kemur Kaþólska kirkjan með 15.917 skráða meðlimi og í þriðja sæti er Fríkirkjan í Reykjavík með 10.053 skráða meðlimi.

Mest hefur fjölgað í Kaþólsku kirkjunni frá 1. desember 2024 eða um 369 meðlimi. Mest hlutfallsleg fjölgun var hjá Wat Phra búddistasamtökunum, eða um 25 prósent.

Þá voru 30.931 skráð utan trú- og lífsskoðunarfélaga sem er 0,5 prósent hækkun frá 1. desember 2024. „Ef að einstaklingur er utan trú- eða lífsskoðunarfélaga þá hefur sá einstaklingur tekið afstöðu til þeirrar skráningar sinnar,“ segir í frétt Þjóðskrár. „Alls voru 94.646 einstaklingar skráðir með ótilgreinda skráningu. Ef að einstaklingur er með ótilgreinda skráningu …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Sér er nú hvað! Til hvers er þá verið að halda upp á jól og páska ef engin er trúin hjá fólkinu manvel eftir því að aldrei var nein afmælisveisla í kringum afmælið mitt aldrei gjafir eða neitt annað að gefnu tilefni handa mer í tilefni dagsins en skemmtilegar minningar sem ég bý yfir
    0
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Þjóðkirkjan" á alltaf að skrifast með stórum staf.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár