Sennilega „toppurinn af ísjakanum“ sem komi í messu

Séra Skúli Sigurður Ólafsson, sókn­ar­prestur í Nes­kirkju, hefur orðið var við auk­inn áhuga ung­menna á kirkju­starf­inu eftir heims­far­aldur. Hann veltir upp mörgum mögu­legum ástæðum fyrir þessu – sótt sé í félags­starf, jarð­teng­ingu og hlé frá kliðnum.

Sennilega „toppurinn af ísjakanum“ sem komi í messu
Nútíma­fólk Skúli geldur var­hug við að kristnin sé tengd við hug­myndir um ímynd­aða „gullöld“ gam­alla kynja­hlut­verka. Mynd: Golli

Ungt fólk, einkum karlar, virð­ist vera farið að sækja kirkju í auknum mæli. Í Nes­kirkju hefur orðið vart við áhuga ungs fólks eftir heims­far­ald­ur­inn og að sögn sókn­ar­prests eru kollegar hans að sjá þá þróun ann­ars staðar. „Flest eru þetta piltar. En það eru ein­hverjar stúlkur líka,“ segir séra Skúli Sigurður Ólafsson, sókn­ar­prestur í Nes­kirkju.

Í hverri messu segir Skúli yfir­leitt vera um fimm, sex ung­menni en þau geti verið allt að tutt­ugu. Ald­urs­bilið sé á milli 15 og 20. „Svo hittir maður oft þessi ung­menni á förnum vegi. Þá tala þeir oft um að þeir séu á leið­inni en hafi ekki látið verða af því að mæta og svona. Senni­lega er þetta topp­ur­inn af ísjak­anum sem við erum að fá.“ 

Þversnið af sinni kynslóð

Spurður hvort hann hafi áður tekið eftir svona miklum áhuga hjá þessum ald­urs­hópi …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Gert hefur verið mikið úr umkomuleysi Jóseps og Maríu í Betlehem. En fræðingar hafa talið stöðu þeirra hafa verið mikið betri en af hefur verið látið. Jósep [og María] var af ætt Davíðs konungs, hún var fjölmenn í Betlehem. Hjá ættingjum sínum ætluðu þau að gista. Jósep vissi að öll gistihús yrðu yfirfull og á uppsprengdu verði. Á þessum tíma voru fjárhús yfirleitt sambyggð við heimili til að nýta hitann. Farið var með nýfædd börn í þau. Að Jesús hafi fæðst í kofa á víðavangi er fjarstæða.
    Ef Jesús hefði fæðst í endaðan desember hefðu ekki verið fjárhirðar á Betlehemsvöllum, því síður nýfædd lömb. Romarríki náði norður fyrir alpa á þessum tíma. Heppilegasti tíminn fyrir manntalið hefði verið á miðju vori þegar lokið var við að sá. Líkleg er að Jesús hafi fæðst um miðjan júní.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár