Ungir karlmenn sækja messur: „Góð leið til að byrja daginn“

Orri Ármanns­son og Sigurður Helgi Sveins­son eru sextán ára. Þeir hafa stundað það að sækja messur í Nes­kirkju frá því þeir fermd­ust og hafa hvatt vini sína til að koma með sér. Borið hefur á auknum áhuga ungs fólks, einkum drengja, á starfi þjóð­kirkj­unnar.

Ungir karlmenn sækja messur: „Góð leið til að byrja daginn“
Trúa á Gullnu regl­una Orri og Sigurður hafa sótt messur með vinum sínum. Mynd: Golli

Á sunnu­dags­morgni í nóv­em­ber hringja kirkju­bjöllur víðs vegar um bæinn og í Vesturbæ Reykja­víkur sem og ann­ars staðar gerir trú­rækið fólk sér leið í messu. Það er nokkuð milt veður miðað við árs­tíma þegar blaða­maður, sem hefur ekki sótt messu áður á full­orð­ins­aldri, sest aft­ast í kirkju­skip­inu.

Háskóla­kór­inn, sem á að syngja í mess­unni, er að æfa sig áður en athöfnin hefst og kór­stjór­inn spilar undir á orgel. Þegar klukk­una fer að draga nær ell­efu fer fólk að tín­ast inn. Eldra fólk í bland við mjög ung börn sest víðs vegar á bekk­ina og bíður þess að guðs­þjón­ustan hefj­ist. Inn ganga líka með­limir hóps sem er hvorki gam­all né á barns­aldri. Tveir hávaxnir ungir karl­menn setj­ast fyrir miðju. Þeir eru klæddir hvers­dags­lega, í inni­skó og striga­skó.

Skúli Sigurður Ólafsson, sókn­ar­prestur Nes­kirkju, segir við Heim­ild­ina að hann hafi orðið var við aukna aðsókn ungs fólks, einkum drengja, í kirkj­una eftir …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Það er fullt af góðum boðskap í Biblíunni sem Kirkjan hefur tekið upp á sína arma og auðvelt að nálgast hann í Kirkjunni. Mikið af þeim boðskap ættu sem flestir að tileinka sér, ekki bara þeir sem sækja kirkjur.

    Hinsvegar er ekki allt rétt sem stendur í Biblíunni. Það er til dæmis ekki til nein sönnun fyrir tilvist Guðs eða guða, eins og ýjað er að í Biblíunni að séu til.

    Varðandi spurninguna sem borin er upp fremst í þessari grein um hvað yrði um mann eftir að maður dæi, þá er því til að svara að maður hverfur algjörlega. Það eina sem verður eftir er dautt lífrænt efni í formi líkama. Allar frumur líkamans deyja. Öll starfsemi þeirra hættir. Allar minningarnar sem voru bundnar í heilafrumunum eyðileggjast. Minningarnar eru það sem fólk kallar stundum anda sinn eða sjálf og þegar þær eyðileggjast þá eyðileggst líka andinn eða sjálfið.
    Það er vissulega harðneskjulegt að maður hverfi bara aftur, eins og það var nú gaman að fæðast.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár