Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Gauta Einarssyni, 18 ára, en síðast er vitað um ferðir hans í Skipalóni í Hafnarfirði um kl. 15.30 í dag. Gauti er um 170 sm á hæð, grannvaxinn og með áberandi hvítt hár. Hann er klæddur í svarta dúnúlpu, svartar buxur og Crocs skó.
Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Gauta, eða vita hvar hann er að finna, eru vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.














































Athugasemdir