Ole Sandberg Segir tengslin milli gjörða okkar og afleið­inga flókin af því að áhrif­anna gætir á hnatt­ræna kerfið. Mynd: Golli

Alþjóðleiki loftslagsbreytinga: Skylda Íslendinga að vernda kríur

Áhugi á umhverfis- og lofts­lags­málum hefur farið dvín­andi hér á landi en víða um heim eru afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga orðnar alvar­legar. Heim­ildin fékk inn­sýn í stöð­una í Norður-Afríku, Evrópu og á norð­ur­slóðum og spurði Ole Sandberg heim­spek­ing af hverju lofts­lags­að­gerðir ættu að skipta Íslend­inga máli. Stutta svarið er krían.

Afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga hafa að mörgu leyti verið nokkuð óáþreif­an­legar fyrir íslenskt sam­fé­lag enn sem komið er og dag­legt líf gengur almennt sinn vana­gang.

Þetta þýðir þó ekki að áhrif­anna gæti ekki nú þegar. Í skýrslu vís­inda­nefndar um lofts­lags­breyt­ingar segir: „[Þær] eru byrj­aðar að breyta nátt­úru­fari og lífs­skil­yrðum fólks á Íslandi.“ 

Staðan er þó mun verri víða um heim þar sem flóð, upp­skeru­brestir og yfir­vof­andi vatns­skortur eru orðin raun­veru­leiki. Þá sýna vís­inda­legar spár og líkön ekki fram á að betri tíð sé í vændum og er Ísland ekki und­an­skilið ef haldið er áfram á núver­andi veg­ferð. 

Þrátt fyrir alvar­legar spár hefur áhugi á umhverf­is­málum farið minnk­andi hér á landi und­an­farið. Í könnun Gallup í ágúst kom fram að 22 pró­sent þátt­tak­enda höfðu mik­inn áhuga á umhverf­is­málum en hlut­fallið er það lægsta síðan mæl­ingar hófust árið 2016. Hæst var það árið 2019 þegar 37,2 pró­sent höfðu mik­inn áhuga á …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SG
    Sigrún Guðmundsdóttir skrifaði
    Mikið er gott að hefja umræðuna um skyldur okkar, það er svo nauðsynlegt. Og það verður ekkert erfitt að rækja skyldurnar (fyrir flesta) þegar ljóst verður hversu margt er (enn) hægt að gera og hversu mikilvægt lífsspursmál er um að ræða, -það eru svo margar leiðir, fyrir hvert og eitt okkar - en einnig getur atvinnulífið gert mjög miklar umbætur. Hér er rætt um einkabílinn - fólk sem vinnur heima minnkar kolefnissporið. Þannig geta vinnuveitendur orðið stór aðili í umbótum. Fyrir utan losun þarf einnig að binda og styðja við líffræðilegan fjölbreytileika. Margt af slíkum verkefnum er mjög gefandi- t.d. styrkja jarðveg (með ræktun m.a. skógrækt) svo hann bindi mun meira kolefni sem svo eykur frjósemi hans sem eflir sprettu gróðurs og svo mætti lengi halda áfram..
    1
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Ísland er alls ekki lítil eyja heldur sú 18. stærsta að flatarmáli á allri Jörðinni !
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Hitabylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur
Umhverfið

Hita­bylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur

„Það er mjög lík­legt að árið í ár verði eitt heitasta árið á öld­inni og næsta ár líka,“ segir Halldór Björns­son, haf- og veð­ur­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands. Sól­þyrstir Íslend­ingar þurfa að huga að því að skipu­leggja sum­ar­frí sín út frá hita­bylgjum. Yfir­stand­andi hita­bylgju í Evrópu má tengja við AMOC-velti­hringrás­ina segir vís­inda­mað­ur­inn Stefan Rahms­torf.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár