<span>Lífið á umdeildasta meðferðarheimili landsins:</span> „Með börn sem voru sekúndum frá því að deyja“

Lífið á umdeildasta meðferðarheimili landsins: „Með börn sem voru sekúndum frá því að deyja“

Mann­skæður bruni, starfs­maður með stöðu sak­born­ings og fíkni­efnin flæð­andi – þannig hafa frétt­irnar verið af Stuðlum. Starfs­menn segja mikið geta gengið á. „Þetta er stað­ur­inn þar sem börnin eru stoppuð af,“ segir starf­andi for­stöðu­maður. Flestir sem þangað koma hafa orðið fyrir alvar­legum áföllum og bera sár sem getur tekið ævina að gróa.

Inni í miðri borg stendur úrræði á vegum barna­verndar fyrir börn og ung­menni sem hafa villst þannig af leið að það þarf að frels­is­svipta þau. Á sínum tíma voru Stuðlar reistir í útjaðri borg­ar­innar, en nú hefur borgin vaxið utan um með­ferð­ar­heim­ilið, skemmt­ana­höll risið í næsta húsi og veg­far­endur sem eiga leið hjá hafa ósjaldan haldið símunum á lofti þegar lög­regla fylgir skjól­stæð­ingum inn. Aðkoman ber þess hins vegar merki að hingað á eng­inn að koma án þess að eiga erindi. 

Alls eru 35 þús­und krakkar á aldr­inum 12 til 18 ára hér á landi, þar af tæp tólf þús­und í Reykja­vík. Aðeins örlítið brot af þessum hópi á nokkurn tím­ann erindi á Stuðla. Árlega dvelja þar á milli 70 til 80 börn, þótt fjöldi daga og vistana sé mis­jafn. Þótt hóp­ur­inn sé lít­ill í þessu almenna sam­hengi, er álagið á starf­sem­ina engu að síður mikið. Hingað koma börn úr …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Týndu strákarnir

„Starfsmenn hafa verið hræddir“
InnlentTýndu strákarnir

„Starfs­menn hafa verið hræddir“

Á Stuðlum hefur sér­stöku öryggis- og við­bragð­steymi hefur verið komið á til að takast á við árásir á starfs­menn og tryggja að þving­anir gagn­vart börnum fari fag­lega fram. Tengsl eru besta for­vörnin segir starf­andi for­stöðu­maður en það dugar ekki alltaf til. Starfs­menn hafa lent í því að það er hrækt á þá, þeir bitnir, skall­aðir og nef­brotnir. Sparkað hefur verið í haus­inn á starfs­mani, hár rifið af höfði starfs­manns og brotin tönn.
Syrgja fyrrverandi skjólstæðing: Til mikils unnið ef hægt er að koma heilunarferli af stað
InnlentTýndu strákarnir

Syrgja fyrr­ver­andi skjól­stæð­ing: Til mik­ils unnið ef hægt er að koma heil­un­ar­ferli af stað

„Við leyfum ekki neyslu hér inni en hver er hinn val­mögu­leik­inn?“ spyr starf­andi for­stöðu­maður Stuðla. Reglur kveða skýrt á um að fíkni­efni séu bönnuð á Stuðlum en börnum er ekki vísað út vegna neyslu. Ef hægt er að koma heil­un­ar­ferli af stað er til mik­ils unnið. „Þetta eru börn sem við þurfum að vernda,“ segir for­stöðu­mað­ur­inn, en starfs­fólkið syrgir fyrr­ver­andi skjól­stæð­ing.
„Ég veit ekki hvernig ég lifði af“
ÚttektTýndu strákarnir

„Ég veit ekki hvernig ég lifði af“

„Mér voru gefin erfið spil og þegar þú kannt ekki leik­inn er flókið að spila vel úr þeim,“ segir Arnar Smári Lárusson, sem glímdi við alvar­legar afleið­ingar áfalla og reyndi allar leiðir til þess að deyfa sárs­auk­ann, þar til það var ekki aftur snúið. „Ég var veikur, brot­inn og fannst ég ekki verð­skulda ást.“ Hann áréttar mik­il­vægi þess að gef­ast aldrei upp. „Það er alltaf von.“

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár