Afhjúpuðu spillingu í Úkraínu

Tveir ráðherrar sögðu af sér í dag.

Sagði af sér
Sagði af sér Svitlana Grynchuk, orku­mála­ráð­herra Úkraínu, talar á blaða­manna­fundi í orku­mála­ráðu­neyti Úkraínu í Kyiv á mánu­dag. Spill­ing­ar­varna­stofnun Úkraínu stendur fyrir umfangs­miklum aðgerðum vegna fléttu í orku­geira lands­ins. Mynd: AFP

Orkumála­ráðherra og dómsmála­ráðherra Úkraínu sögðu af sér í dag vegna meintrar aðildar þeirra að umfangs­miklu spillingar­máli í orkugeira landsins.

Rann­sakendur halda því fram að náinn banda­maður Volodymyrs Zelenskys forseta hafi skipulagt 100 milljóna dala (12,6 milljarða króna) mútu­fléttu til að sölsa undir sig fjármuni, sem hefur vakið reiði almennings á sama tíma og víðtækt rafmagns­leysi ríkir vegna árása Rússa.

Úkraína hefur lengi glímt við spillingu og er litið á það sem lykil­skilyrði fyrir umsókn landsins um aðild að Evrópu­sambandinu að tekið sé hart á mútum.

Zelensky hafði áður kallað eftir afsögn dómsmála­ráðherra síns, Germans Galushchenkos, sem rann­sakendur halda fram að hafi fengið „persónu­legan ávinning“ í kerfinu, auk orkumála­ráðherrans Svitlönu Grynchuk.

Ekki er vitað til þess að þau hafi verið ákærð og Grynchuk hefur ekki verið nefnd sem einhver sem hafi hagnast á kerfinu.

„Dómsmála­ráðherrann og orkumála­ráðherrann geta ekki setið áfram í embætti,“ sagði Zelensky í myndbandi sem birt var á samfélags­miðlum.

Skömmu síðar lögðu þau bæði fram afsagnar­bréf, að sögn Yuliu Svyrydenko, forsætis­ráðherra Úkraínu.

Hneykslis­málið hefur vakið reiði meðal Úkraínu­manna, sem þjást af tíðum hita- og rafmagns­leysi vegna sprengju­árása Rússa.

„Af hverju gera þeir þetta?“

„Þetta er ógeðslegt,“ sagði Davyd, 24 ára, við AFP en neitaði að gefa upp eftirnafn sitt.

„Þeir eru að eyði­leggja okkur, orðspor okkar og framtíð okkar. Við eigum enga framtíð ef við erum með svona svika­hrappa,“ sagði hann og lýsti yfir áhyggjum af því hvernig hneykslis­málið myndi koma út meðal mikil­vægra stuðnings­manna Kyiv í ESB.

Fólk „safnar eins miklum peningum og mögulegt er til að hjálpa (hernum) og þeir eru bara að fela peningana í kjöllurunum sínum,“ bætti hann við.

„Af hverju gera þeir þetta?“

„Innri óvinir“

Ásakanirnar, sem komu fram fyrr í vikunni, snúast um mútur vegna samninga sem tengjast Energoatom, ríkis­kjarnorku­fyrirtækinu og mikil­vægasta raforku­veitanda landsins.

Grynchuk tók við af Galushchenko sem orkumála­ráðherra í sumar.

Úkraínska þingið þarf formlega að samþykkja afsagnir þeirra beggja.

Stjórnar­andstöðu­flokkur Petros Poroshenkos, fyrr­verandi forseta, krafðist þess að ríkis­stjórnin segði af sér.

Í þessari viku hafa embættis­menn gegn spillingu handtekið nokkra einstaklinga í aðgerðinni.

Olena Boikova, 57 ára eftirlauna­þegi, sagðist finna fyrir „hneykslun“ og kallaði þá sem áttu hlut að máli „innri óvini“.

Zelensky skipaði ráðherrunum að segja af sér og sagði að það væri „algjör­lega óásættanlegt að enn séu til einhverjar (spillingar)fléttur í orku­geiranum“ á meðan Úkraínu­menn þjást af daglegu rafmagns­leysi.

Rússar hafa gert harðar árásir á orkukerfi Úkraínu með dróna- og flugskeyta­árásum á hverri nóttu, í því sem Kyiv kallar mein­fýsnar árásir sem miða að því að steypa milljónum Úkraínu­manna út í myrkur og kulda yfir veturinn.

Rann­sakendur segja að fléttan hafi verið skipulögð af Timur Mindich, fyrr­verandi viðskipta­félaga Zelenskys.

Mindich er meðeigandi að framleiðslu­fyrirtækinu Kvartal 95, sem Zelensky stofnaði þegar hann var stjörnu­grínisti áður en hann fór í stjórnmál.

Mindich flúði land skömmu áður en ásakanirnar voru tilkynntar á mánudag, að sögn landamæra­þjónustunnar.

Zelensky hefur ekki tjáð sig um hlutverk Mindichs í kerfinu, en Svyrydenko forsætis­ráðherra sagðist vera að beita hann og annan ákærðan kaup­sýslumann, Oleksandr Tsukerman, persónu­legum refsiaðgerðum.

Kvartal 95, sem fram­leiddi sjónvarps­þætti Zelenskys „Þjónn fólksins“, sagði að rann­sóknin væri ekki „tengd starfi stúdíósins“.

Hneykslis­málið er mikil prófraun fyrir Zelensky, sem hefur verið sakaður um miðstýringu valds og að þagga niður í gagn­rýnendum eftir innrás Rússa.

Fyrr á þessu ári komu fram mótbárur frá almenningi og Evrópu­sambandinu vegna tilrauna ríkis­stjórnarinnar til að afnema sjálf­stæði tveggja stofnana gegn spillingu, sem rannsaka og sækja þetta mál til saka.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár