Inga Sæland, húsnæðis- og félagsmálaráðherra, beygði af þegar hún flutti ræðu á Alþingi um atkvæðagreiðslu um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Samningurinn var samþykktur nú fyrir stundu (um klukkan 16:15) með 45 atkvæðum. Fimm greiddu ekki atkvæði.
„Ég get næstum farið að gráta, ég er svo glöð að vera komin hingað,“ sagði Inga Sæland og bætti við í ræðu sinni: „Öllum skal tryggður réttir til aðstoðar vegna öldrunar, örorku, atvinnuleysis og hvers annars sambærilegs,“ sagði hún. Hún sagði að þó þetta væri það sem boðað væri í stjórnarskrá Íslands, „hef ég ítrekað staðið hér til þess að verja tilverurétt fatlaðs fólks, sem á þegar þennan stjórnarskrárvarða rétt,“ sagði Inga sem sagði að lokum og beygði af: „Hjartans þakkir fyrir að vera komin hingað.“
Stuttar umræður fór svo fram þar sem nokkrir þingmenn greindu frá atkvæði sínu, og fögnuðu flestir þessum tímamótum. Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs …




















































Athugasemdir