Aðfluttir unglingar fjórum sinnum líklegri til að upplifa hatursglæpi

Ný rannsókn Margrétar Valdimars­dóttur afbrota­fræðings byggir á gögnum sem safnað var hjá 3.000 ungmennum á Íslandi.

Margrét Valdimarsdóttir
Margrét Valdi­mars­dóttir Dósent við HÍ segir nið­ur­stöð­urnar virð­ast sjálf­sagðar en að þær þurfi þó að kanna vís­inda­lega. Mynd: Golli

Innflytjendur á unglings­aldri eru meira en fjórum sinnum líklegri en innfæddir til að upplifa haturs­glæpi. Þetta kemur fram í grein Margrétar Valdimars­dóttur, dósents við Háskóla Íslands, sem hefur verið birt í fræði­ritinu Journal of Contemporary Criminal Justice.

Rannsókn Margrétar byggir á gögnum sem safnað var hjá 3.000 unglingum á aldrinum 13 til 17 ára. Haturs­glæpir gagnvart innflytjendum á unglings­aldri hafa orðið meira áberandi samhliða fólks­flutningum milli landa og aukinni menningarlegri fjöl­breytni samfélaga, að því fram kemur í greininni.

„Unglings­aldurinn er mótunar­tími sem hefur í för með sér mótun sjálfs­myndar, þróun á samböndum við jafningja og meiriháttar félags­legan og tilfinninga­legan þroska,“ segir í greininni, sem er á ensku, í þýðingu blaða­manns. „Upplifanir á þessu stigi geta haft varanleg áhrif á samfélags­mótun og andlega heilsu. Fyrir innflytjendur á unglings­aldri felur þessi tími oft í sér tvöfalda umbreytingu þar sem þeir þurfa bæði að mæta almennum áskorunum unglings­aldurs og einnig …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár