Fólk á sumardekkjum setur svip sinn á borgina

Snjó­þyngsli á suð­vest­ur­horn­inu hafa sett sam­göngur úr skorðum.

Fólk á sumardekkjum setur svip sinn á borgina
Stopp Þessum strætó var ekið út í kant á leið upp Brúnaveg í Laug­ar­dal. Erf­ið­lega hefur gengið fyrir marga bíla að keyra upp brekkur, jafn­vel aflíð­andi, í færð­inni. Mynd: Golli

Snjó hefur kyngt niður á Suð­vest­ur­horn­inu und­an­farna tíma. Óund­ir­búnir öku­menn og erf­iðar aðstæður hafa sett svip sinn á höf­uð­borg­ar­svæðið það sem af er morgni. Nokkrir bílar hafa endað utan vegar á Reykja­nes­braut í morgun og varar lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu við slæmri færð. 

Snjó­mokstur hófst klukkan fjögur í morgun og hafa fleiri en tutt­ugu snjó­ruðn­ings­tæki verið í notkun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þrátt fyrir það hefur gengið erf­ið­lega að halda helstu leiðum auðum, því sífellt meiri snjór fellur úr lofti. 

Í kapp við tím­annEinn af við­mæl­endum Heim­ild­ar­innar í morgun var í óða önn að reyna að moka bíl­inn laus­ann svo hann kæm­ist í dekkja­skipti.

Einn veg­far­anda sem ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar tók tali var í óða önn að moka bíl­inn sinn úr stæði til að ná í dekkja­skipti sem hann átti bókuð klukkan 9. 

Svo virð­ist sem margir öku­menn hafi ekki verið búnir að skipta af sum­ar­dekkjum fyrir snjó­kom­una, sem hafði verið varað við í gær. Spám bar þó ekki alveg saman um hversu mikið vetr­ar­veður yrði í dag og hafði heldur verið dregið úr við­vör­unum um morg­un­snjó eftir því sem leið á gær­dag­inn. 

Gular veð­ur­við­var­anir taka gildi á Vest­ur­landi, Höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Suð­ur­landi um hádeg­is­bil í dag. Á vef Veð­ur­stof­unnar segir að akst­urs­skil­yrði muni versna.  

Snjó­moksturÁ þriðja tug snjó­ruðn­ings­tækja eru við störf í Reykja­vík.

Enn eru vetr­ar­frí í grunn­skólum í Reykja­vík og léttir það á umferð upp að ein­hverju marki. Úlf­héð­inn Ullur Jón­þórs­son er einn þeirra nem­enda sem eru í fríi í dag og hafði hann sett upp jóla­sveina­húfu áður en hann ark­aði af stað út í bak­arí í snjónum. „Hvað gerir maður á svona vetr­ar­morgni?“ sagði mamma hans Elísabet Stef­áns­dóttir og hló.

Jóla­sveina­húfaÚlf­héð­inn Ullur og Elísabet voru á leið í bak­arí í vetr­ar­færð­inni. Hann er einn fjöl­margra nem­enda sem eru í vetr­ar­fríi í dag.

Samkvæmt upp­lýs­inga­síðu Reykja­vík­ur­borgar er mokstr­inum for­gangs­raðað. Stofn­brautir, strætó­leiðir og fjöl­farnar safn­götur eru í for­gangi og eiga að vera færar fyrir klukkan sjö að morgni. Aðrar meg­in­um­ferð­ar­götur skulu hreins­aðar fyrir klukkan átta.

Stofn­stígar, ásamt helstu leiðum að strætó­bið­stöðvum og skólum, eiga að vera greið­færir fyrir klukkan átta en almennir stígar fyrir hádegi.  Snjó­mokstur og hálku­varnir við strætó­bið­stöðvar, skóla, sund­laugar og vel­ferð­ar­stofn­anir eru unnin eftir þörfum.

Út að gangaBaldur og hund­ur­inn Þoka létu snjó­inn ekki stöðva sig.
Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í vikunni