Eldislaxar fundist allt frá Borgarfirði yfir í Blöndu

Erfða­grein­ing stað­fest­ir út­breiðslu eld­islaxa suð­ur og aust­ur af Vest­fjörð­um.

Eldislaxar fundist allt frá Borgarfirði yfir í Blöndu

Erfðagreining hefur staðfest að eldislaxar hafa veiðst í sex laxveiðiám allt frá Reykjadalsá í Borgarfirði yfir í Blöndu í Austur-Húnavatnssýslu.

Eftir slysasleppingu laxa í Dýrafirði í ágúst vaknaði grunur um að fjöldi eldislaxa hefðu veiðst í Haukadalsá inn af Hvammsfirði, skammt frá Búðardal. Í ljós hafði komið að gat var á sjókví Arctic Sea Farm „í nokkurn tíma án þess að framleiðandi hafi tilkynnt um tilvist þess til Matvælastofnunar“. Var málið litið „alvarlegum augum“.

Nú hefur rannsókn leitt í ljós að eldislax fannst í Haukadalsá, Hrútafjarðará, Blöndu, Miðfjarðará, Vatnsdalsá og Reykjadalsá í Borgarfirði. Að auki er einn lax sem veiddist í byrjun október í Ytri-Rangá á Suðurlandi, í upprunagreiningu.

Ekkert sjókvíaeldi er í þeim landshlutum þar sem laxveiðiárnar renna til sjávar og er því ljóst að eldislaxinn hefur ferðast langa leið.

Fiskeldi í sjóSjókvíeldi er bannað á þeim svæðum …
Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár