Getur ekki annað en vonað að samkomulagið verði virt

„Ég verð að trúa því að þetta sé mögu­legt,“ sagði utan­rík­is­ráð­herra Palest­ínu um það sam­komu­lag sem nú virð­ist í höfn um vopna­hlé á Gaza. Hún er stödd á Íslandi. Ráð­herr­ann sagð­ist þakk­lát Möggu Stínu, sem nú situr í haldi ísra­el­skra stjórn­valda eftir að hafa tekið þátt í til­raunum til að koma neyð­ar­að­stoð til Gaza.

Getur ekki annað en vonað að samkomulagið verði virt
Á Íslandi Dr. Varsen Aghabekian, utan­rík­is­ráð­herra Palest­ínu, er stödd á Íslandi og hefur í dag fundað með bæði Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra og Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. Hún mun svo funda með full­trúum Alþingis í dag. Mynd: Golli

„Við vonum að sam­komu­lagið verði virt, því það er eina leiðin áfram,“ sagði Dr. Varsen Aghabekian, utan­rík­is­ráð­herra Palest­ínu, á blaða­manna­fundi í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu í dag. „Það er komið nóg af drápum og við þurfum að binda endi á ofbeldið og gagn-ofbeldið. Í dag horfum við til bjart­ari fram­tíðar.“

Aghabekian er í opin­berri heim­sókn á Íslandi í boði Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra. Til­viljun ræður því að hún sé stödd hér á landi þegar vopna­hlé virð­ist vera í aug­sýn á Gaza eftir tveggja ára linnu­lausan hernað Ísraela á svæð­inu. 

„Það hefði átt að stöðva þetta miklu fyrr, því það var hægt að stöðva það.“

Hún ræddi við blaða­menn í stjórn­ar­ráð­inu eftir hádeg­is­fund með Þorgerði og Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. Hún sagð­ist þurfa að trúa á að allir aðilar sam­komu­lags­ins sem til­kynnt var um í morgun muni virða það.

„Ég verð að trúa því að þetta sé mögu­legt. Ég verð að tryggja að allir vinni að því mark­miði,“ sagði hún. „Það hefði átt að stöðva þetta miklu fyrr, því það var hægt að stöðva það. Við vitum öll að þetta stríð var hægt að stöðva.“

Aghabekian var með­vituð um að íslenskur rík­is­borg­ari, Margrét Kristín Blöndal, eða Magga Stína, væri í haldi ísra­el­skra stjórn­valda eftir að ísra­elski her­inn stöðv­aði för báts sem hún var um borð í. Báturinn var stöðv­aður á alþjóð­legu haf­svæði utan við Gaza-strönd­ina og var mark­mið leið­ang­urs­ins að flytja neyð­ar­að­stoð til stríðs­hrjáðra íbúa. Ráð­herr­ann sagði Palest­ínu­menn þakk­láta Möggu Stínu. 

StöðvuðÍsra­elski her­inn fór um borð í bát­inn sem Magga Stína sigldi með ásamt hópi fólks í átt að Gaza-strönd­inni. Allir um borð voru fluttir af hernum til Ísraels, þaðan sem til stendur að vísa þeim úr landi.

„Palest­ínu­menn kunna að meta hvers kyns aðgerðir, frá hvaða stofnun eða ein­stak­lingi sem er, sem stígur fram til að sýna að við erum að reyna að rjúfa umsátrið, kúg­un­ina, her­námið. Og því erum við mjög þakk­lát fyrir hana, en okkur þykir einnig mjög leitt það sem er að ger­ast hjá henni. En við vitum að þetta hefur verið mynstrið, og fyrri flotar hafa verið stöðv­aðir,“ sagði hún.

„Aftur og aftur verðum við að segja að Ísrael hafi engan rétt til að stöðva flot­ana á alþjóð­legu haf­svæði. Þetta er brot á alþjóða­lögum. Ég vona að sam­landi ykkar verði látin laus eins fljótt og auðið er, og hún kom­ist heim heil á húfi.“

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár