Hver vill búa á hrikalegu jökulskeri?

Í sumar gekk fjöl­þjóð­legur hópur nátt­úru­fræð­inga yfir Breiða­merk­ur­jökul og upp í afskekktu jök­ul­skerin Esju­fjöll. Þau voru þangað komin til að skoða hvernig líf þró­ast og tekur land undan hop­andi jöklum lands­ins. Blaða­maður Heim­ild­ar­innar fylgdi hópnum og lærði um áhrif lofts­lags­breyt­inga á jökla og gróður, kyn­legar líf­verur og nýjar vís­inda­legar upp­götv­anir.

Það er sól­skin og sum­ar­blár him­inn. Ég sit í aft­ur­sæt­inu á troð­fullum, gömlum Land Cruiser sem hoss­ast um á grófum mal­ar­vegi inn að jök­ul­sporði Breiða­merk­ur­jök­uls. Út um fram­rúð­una sé ég áfanga­stað­inn. Tign­ar­leg, blá og fjar­ska­fal­leg fjöll – eða raunar jök­ul­sker. Tindar sem stinga sér upp úr Vatna­jök­ul­sísnum eins og kollar að koma upp úr kafi. Þetta eru hin ein­stöku Esju­fjöll. 

Þau virð­ast ekki svo fjar­læg þegar jepp­anum er lagt í jök­ul­garð­inum. En það er samt sem áður nokkurn veg­inn heill skrið­jök­ull sem þarf að þvera til að kom­ast að þeim. Og skrið­jöklar hafa aldrei verið þekktir fyrir að leyfa þeim sem um þá ferð­ast að æða beint af augum. Fremur fyrir ævin­týri og áskor­anir. Fyrir bláar sprungur sem teygja sig út jök­ul­dal­ina, drullug og odd­hvöss jök­ul­drýli, ár sem flæða og ferð­ast sikk-sakk eins og snákar og djúpa svelgi þar sem vatnið foss­ast síðan niður, djúpt inn í iðrar jök­uls­ins …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þórarinn Ólafsson skrifaði
    Þakka ykkur fyrir sameiginlegan fróðleik ykkar. Skemmtileg lesning.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Hitabylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur
Umhverfið

Hita­bylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur

„Það er mjög lík­legt að árið í ár verði eitt heitasta árið á öld­inni og næsta ár líka,“ segir Halldór Björns­son, haf- og veð­ur­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands. Sól­þyrstir Íslend­ingar þurfa að huga að því að skipu­leggja sum­ar­frí sín út frá hita­bylgjum. Yfir­stand­andi hita­bylgju í Evrópu má tengja við AMOC-velti­hringrás­ina segir vís­inda­mað­ur­inn Stefan Rahms­torf.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár