Forsögunni gjörbylt! Við erum miklu eldri en við héldum, og kannski upprunnin í Asíu

Síðustu 20 árin hafa stöðugt borist nýjar og merki­legar fréttir af þró­un­ar­sögu manns­ins. En allra nýj­ustu frétt­irnar eru kannski þær allra merki­leg­ustu og óvænt­ustu.

Forsögunni gjörbylt! Við erum miklu eldri en við héldum, og kannski upprunnin í Asíu
Dreka­mað­ur­inn hefur ekki verið neitt sér­lega ókunn­ug­legur.

Síðustu 20 árin hefur þekk­ing okkar á for­sögu manns­ins ger­breyst. Þar koma við sögu forn­leifa­fundir, stór­bætt tækni við ald­urs­grein­ingar og síð­ast en ekki síst erfða­rann­sóknir.

Fyrir alda­mótin 2000 höfðum við dregið upp frekar snyrti­lega mynd af for­tíð­inni. Svo­nefndir suð­ur­apar sem bjuggu í Austur-Afríku tóku upp á því fyrir um fjórum millj­ónum ára að ganga þokka­lega upp­réttir. Þar með voru hend­urnar lausar í ýmis­legt gagn­legt og með tím­anum jókst heila­starf­semin umtals­vert. Senni­lega hélst þetta mjög í hendur, ef svo má segja.

Fyrir 2,5 millj­ónum ára var komin fram mann­teg­undin Homo habilis, mað­ur­inn sem fór að nota tæki. Fyrir um 1,8 millj­ónum ára hafði svo þró­ast önnur teg­und frá Habilis eða skyldum hópi, það er að segja Homo erectus, hinn upp­rétti maður.

Viti borni maðurinn?

Og fyrir eitt­hvað um 100.000 árum hafði Erectus svo getið af sér „hinn viti borna mann“, Homo sapi­ens, okkur. Hlið­ar­grein á stofni Sapiens var Neand­er­dals­mað­ur­inn en ann­ars var þró­unin að mestu bein lína frá einni teg­und til ann­arrar.

Á und­an­förnum tveim ára­tugum ger­breytt­ist þessi mynd.

Í ljós kom að mann­teg­und­irnar voru miklu fleiri en talið hafði verið. Í stað þess að ein teg­und tæki við af annarri reynd­ust iðu­lega margar teg­undir hafa verið á dögum sam­tímis, stundum á sama svæði.

Svona litu þá drög að nýrri for­sögu út í síð­ustu viku (og athugið að hér eru flókin mál ein­földuð ansi mikið):

Erectus eða Ergaster?

Ekkert hefur verið hróflað við fyrstu ætt­lið­unum en á dag­inn komið að sam­tímis Erectus hafa verið til all­margar aðrar teg­undir, flestar eflaust komnar frá honum en aðrar ef til af enn eldri teg­undum eins og Habilis.

Dreka­mað­ur­inn knái.

En um mjög svipað leyti og Erectus kom fram birt­ist önnur ekki ósvipuð teg­und, Homo ergaster, sem sé fyrir 1,8 millj­ónum ára. Og lík­lega var það Ergaster frekar en Erectus sem gat síðan af sér Homo Heidel­berg­ensis fyrir 700 þús­und árum.

Og svo leit út fyrir að Homo Heidel­berg­ensis hefði getið af sér fyrst Neand­er­dals­mann­inn fyrir 400.000 árum og síðan Homo sapi­ens og hina nýfundnu Denisova fyrir um 200-300.000 árum.

Til Kína og Mansjúríu

Fleiri teg­undir voru svo ber­sýni­lega á sveimi hingað og þangað: Homo Flor­esi­ensis, Homo naledi og Homo Luzonensis og fleiri teg­undir sem erfða­mengni okkar gefa til kynna að hafi verið til en hafa ekki fund­ist í jarð­lögum enn.

Margar þeirra lifðu vafa­laust langt fram á daga Sapiens. 

Þetta var nú allt saman nógu spenn­andi í sjálfu sér og flest á hverf­anda hveli í fræð­unum.

En eng­inn átti samt von á því sem nú hefur gerst. 

Þannig vill til að árið 1931 fannst í Harbin í Man­sjúríu á mótum Síberíu, Mongólíu og Kína höf­uð­kúpa. Er af því saga sem ég sagði í flækju­sögu­grein í Heim­ild­inni fyrir rúmu ári, sjá hér.

Voru Denisovar drekamenn, eða öfugt?

Höf­uð­kúpan hlaut nafnið Homo longi eða dreka­mað­ur­inn, því drekar eru jú í hávegum hafðir í Kína, en lengi vel voru menn alls ekki með á hreinu af hvaða teg­und dreka­mað­ur­inn var.

Nú á fáeinum vikum hafa hins vegar tví­vegis borist nýjar fréttir af dreka­mann­inum sem til veru­legra tíð­inda má telja.

Fyrst frétt­ist fyrir nokkrum vikum að nýjar rann­sóknir á efna­sam­setn­ingu og bygg­ingu haus­kúpu dreka­manns­ins í Harbin sýni sterk tengsl hans við Denisova.

Menn sæju ekki betur en þessi Homo longi hefði verið af ætt eða að minnsta kosti mjög skyldur Den­isovum.

Það var í sjálfu sér mjög merki­legt því það fyllti mjög út í þá mynd sem við höfum verið að reyna að draga upp af útbreiðslu Den­isovanna.

Nú ber nýrra við!

En nú fyrir aðeins örfáum dögum koma svo enn nýrri og enn merki­legri fréttir.

Ítar­legar rann­sóknir á stein­gerðri höf­uð­kúpu sem fannst í Yunxian sýslu í Hubei-hér­aði inni í miðju Kína 1990 voru þá birtar í tíma­rit­inu Science, sjá hér.

Kona af kyni dreka­manns­ins,myndin er byggð á útliti höf­uð­kúp­unnar.

Og þær nið­ur­stöður setja bók­staf­lega alla for­sögu manns­ins í upp­nám. 

Fyrst er frá því að segja að mað­ur­inn í Hubei – sem kall­ast í fræð­unum Yunxian 2 – virð­ist hafa verið af ætt Homo longi, hugs­an­lega for­faðir eða -móðir þess Homo longi eða Denisova sem fannst í Man­sjúríu þó það séu nú bara get­gátur.

Þetta var í sjálfu sér stór­merki­legt enda höfðu menn hingað til helst talið að Yunxian 2 væri ein­hver sort af Erectus.

Segulmælingar

En svo er annað og enn merki­legra.

Yunxian 2-kúpan var ald­urs­greind með því að skoða efna­fræði­lega sam­setn­ingu stein­gerðra efna sem fund­ust í kringum beinin og seg­ul­stefnu jarð­laga þar sem hún fannst. Vís­inda­menn not­uðu bæði úran–blý grein­ingu (U–Pb) til að mæla aldur stein­efna sem mynd­uð­ust þegar beinin urðu að steini, og seg­ul­mæl­ingar til að bera jarð­lögin saman við þekktar breyt­ingar í seg­ul­sviði jarðar.

(Ég kann auð­vitað ekki að útskýra þessa aðferð neitt frekar. Ég tók þetta bara upp úr grein um rann­sókn­ina til að sýna að þetta er alvöru­mál. Ég vona að lýs­ingin á aðferð­inni sé þol­an­lega rétt.)

Milljón ára gömul bein?

Og það sem kom upp úr hatti ald­urs­grein­ing­ar­mann­anna var að bein Yunxian 2 væru allt að milljón ára gömul.

Sem sagt að minnsta kosti 500.000 árum eldri – og senni­lega vel rúm­lega það – heldur en Homo longi hefur hingað til verið tal­inn vera.

Og ekki nóg með það, heldur hafa erfða­rann­sóknir þegar bent til að Homo sapi­ens, Homo Neanderthalencis og Homo longi (for­faðir eða náfrændi Den­isovanna) hafi átt rætur að rekja til sam­eig­in­legra for­for­eldra en ætt­línan klofnað á mjög svip­uðum tíma. 

Ekki nema hundrað þúsund ár

Það hafi ekki skeikað meira en svona 100.000 árum milli þess að teg­und­irnar þrjár (og kannski fleiri) slitu sig frá hinum sam­eig­in­lega ætt­legg.

Og þetta þýðir þá nán­ast sjálf­krafa að Homo sapi­ens, eða náinn for­faðir hans, hefur verið kom­inn fram á sjón­ar­sviðið fyrir 900.000 til milljón árum síðan.

Miklu, miklu fyrr en talið var.

Og þetta opnar líka á þann mögu­leika að Homo sapi­ens hafi kannski ekki endi­lega þró­ast fyrst í Afríku eins og hingað til hefur verið talið næsta víst.

Rætur víða?

Ástæðan fyrir því er að Yunxian 2 sýnir ýmis þróuð ein­kenni sem áður voru talin sér­kenni Homo sapi­ens.

Dreka­mað­ur­inneins og hann kann að hafa litið út.

Haus­kúpan hefur bæði haft stóran heila og „flatt“ and­lit, eig­in­leika sem hingað til voru taldir koma miklu síðar fram. Ef þessir drættir til­heyra líka þró­un­ar­ferli Sapiens bendir það til að hann hafi verið orð­inn til mun fyrr en talið var.

Þá gæti þró­unin hafa átt sér stað ekki á einum stað heldur í flóknu sam­spili stofna víðs vegar í Asíu og Afríku sem skipt­ust á erfða­efni.

Homo sapi­ens gæti því átt rætur víða, ekki ein­ungis á einum stað.

Rannsókninni vel tekið

Rann­sókn­inni í Science hefur verið vel tekið af öðrum vís­inda­mönnum. Í fljótu bragði hefur ekki verið bent á veilur í rann­sókn­inni en auð­vitað vita allir að þær gætu komið í ljós síðar.

Hafi Homo sapi­ens haf­ist upp víðar en bara í Afríku er til dæmis erfitt að skýra af hverju fólk af afrískum upp­runa sýnir nær enga erfða­blöndun við Neand­er­dals­menn og Denisova.

Hingað til hefur verið talið að það sýni einmitt að Homo sapi­ens hafi orðið til í Afríku en ekki farið að bland­ast frænd­fólki sínu fyrr en eftir að þaðan var komið.

Leyndardómurinn mesti

Og ef ald­ur­grein­ing­arnar eru réttar, þá verður einn leynd­ar­dómur úr sögu manns­ins raunar enn furðu­legri en hingað til.

Hingað til hefur sem sé verið talið að Homo sapi­ens hafi komið til sögu fyrir 200-300.000 árum. Hann tók hins vegar ekki „stóra stökkið fram á við“ fyrr en fyrir í hæsta lagi 100.000 árum. Þá fór hann að þró­ast til mun öfl­ugri vits­muna en frænd­fólkið.

Spurn­ingin er hvers vegna það hafi gerst til­tölu­lega snögg­lega rúm­lega 100.000 árum eftir að Homo sapi­ens var til orð­inn.

Því ekki strax ef mögu­leik­arnir voru fyrir hendi í heila hans?

Og ef Homo Sapiens reynd­ist nú vera næstum milljón ára gam­all, þá verður enn skrýtn­ara af hverju svo lítið gerð­ist svo óra­lengi í sög­unni – áður en hann tók stóra stökkið fram á við.

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Stefan Benediktsson skrifaði
    AFI?
    0
  • Helgi Hauksson skrifaði
    Kannski var það ekki svo lítið miðað við fjölda sem á tímabili fór niður í 1000 einstaklinga alls á Jörðinni allri skv DNA rannsóknum — og augljóslega hafa risið menningarsamfélög sem unnu afrek með grjót sem við kunnum engar skýringar á enn í dag, hundruð tonna að þyngd, og flutt þau fárnlegar vegalengdir.
    Kannski eru undragrjótin miklu eldri en við höfum horfst í augu við. Ef við loks líka viðurkennum að menningin er ekki bein línuleg þróun má kannski betur sjá hvað tilheyrir hverjum tíma (án þess að blanda geimverum í dæmið).
    Þá hafa líka væntalega helstu búsvæði verið meðfram ströndinn, sem á milljón árum hefur marg oft farið í kaf, risið aftur og farið aftur í kaf — hver veit. „Bara grafa aðeins meira“ og jafnvel kafa aðeins meira.
    0
  • Sigrídur Magnúsdóttir skrifaði
    Mjög athygglisverð grein. Væri spennadi að sjá þetta útlistað enn betur með ættartrjám þróunnar og tilheyrandi
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár