Píratar næðu á þing í dag

Stuðn­ingur við Pírata mælist nú tæp sex pró­sent. Það væri nóg til að tryggja flokknum minnst þrjá full­trúa á þingi. Sam­fylk­ingin mælist langstærsti flokk­ur­inn sem fyrr með rúm­lega þrjá­tíu pró­senta fylgi.

Píratar næðu minnst þremur full­trúum á þing í dag, sam­kvæmt nið­ur­stöðum nýrrar könn­unar Maskínu. Flokk­ur­inn nýtur 5,8 pró­senta stuðn­ings og myndi því rjúfa fimm pró­senta þrösk­uld­inn sem þarf til að fá úthlutað upp­bót­ar­þing­mönnum.

Píratar féllu af þingi í kosn­ing­unum sem fram fóru undir loka síð­asta árs. Það gerðu Vinstri græn líka en stuðn­ingur við þau mælist enn undir þrösk­uld­inum. Fylgi Vinstri grænna mælist nú 4,1 pró­sent. 

Sam­fylk­ingin er enn langstærsti flokk­ur­inn, sam­kvæmt könn­un­inni, með 31,9 pró­senta fylgi. Það er um það bil sama fylgi og flokk­ur­inn mæld­ist með í síð­ustu könnun Maskínu. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn marar á sama stað og í síð­ustu könnun, í 18,6 pró­sentum, en Viðreisn fellur lít­il­lega og mælist nú með 14,3 pró­senta stuðn­ing.

Fylgi Fram­sókn­ar­flokks og Flokks fólks­ins mælist í báðum til­vikum 6,3 pró­sent. Mið­flokk­ur­inn er stærri en þeir báðir með 9,1 pró­senta fylgi. 

Sós­í­alista­flokkur Íslands mælist  með 3,5 pró­senta fylgi og kæmi því ekki full­trúa að á þingi. Flokk­ur­inn héldi hins vegar áfram að fá greiðslur úr rík­is­sjóði, líkt og hann hefur gert und­an­farin miss­eri, yrðu þetta nið­ur­stöður kosn­inga. Til að tryggja sér greiðslur þarf að ná að lág­marki 2,5 pró­sent atkvæða í kosn­ingum. 

Könnun Maskína 4.–19. september 2025
Samfylkingin
31,9%
Sjálfstæðisflokkurinn
18,6%
Viðreisn
14,3%
Miðflokkurinn
9,1%
Framsókn
6,3%
Flokkur fólksins
6,3%
Píratar
5,8%
Vinstri græn
4,1%
Sósíalistaflokkurinn
3,5%
Heimild: Maskína. Strikalínan er 5% þröskuldurinn fyrir jöfnunarsæti.
Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár