Gísella Hannesdóttir er eldri systir 17 ára stúlku sem hefur glímt við sjálfsskaða og sjálfsvígshegðun undanfarið eitt og hálft ár. „Þetta hefur verið mjög erfitt fyrir mína andlegu heilsu og hefur haft mikil áhrif á mig,“ segir Gísella, sem er aðeins 22 ára, en hún fékk taugaáfall og fór í svokallaða kulnun í lífinu í ágúst í kjölfar síðustu sjálfsvígstilraunar systur sinnar.
Hún upplifir að aðstandendur einstaklinga með geðræn veikindi séu skildir eftir í heilbrigðiskerfinu. „Það er svo fáránlegt því að aðstandendur eru inni í aðstæðunum allan tímann,“ útskýrir hún og segir: „Það eru aðstandendur sem geta kannski stutt mest við – en þeir þurfa þá að fá verkfærin.“
Rannsóknir hafa sýnt fram á að alvarleg geðræn veikindi hafi ekki einungis áhrif á sjúklinginn sjálfan heldur hafi mikil áhrif á aðstandendur þeirra. Fjölskyldumeðlimir búa sjálfir við verri líkamlega heilsu en almennt gengur og gerist og leita oftar eftir læknisaðstoð en önnur. Meðal einkenna sem fjölskyldumeðlimir upplifa eru svefnleysi, höfuðverkir og gífurleg þreyta. Þá eru fjölskyldumeðlimir oft í umönnunarhlutverki en slíku fylgir mikið andlegt álag.

Músíkalskar og nánar systur
„Við eigum rosa náið samband og það hefur alltaf verið þannig,“ segir Gísella um samband sitt við Huldu Guðbjörgu, yngri systur sína. „Ég er mjög náin fjölskyldu minni og mér þykir vænt um fólkið mitt. Þannig að maður er alltaf að reyna að passa upp á það.“
Systurnar eru bestu vinkonur og á milli þeirra er strengur vegna sameiginlegs áhuga þeirra á tónlist. Gísella spilar á píanó og stundaði söngnám í Söngskólanum í Reykjavík og Hulda stundar fiðlunám við Tónlistarskóla Kópavogs og er í ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands. „Hún er mjög töff fiðluleikari. Hún getur spilað hvað sem er eftir eyranu,“ lýsir Gísella af aðdáun og heldur áfram: „Það er mjög gaman að spila saman.“


























Athugasemdir (1)