Krafa um endurnýjun hjá Samfylkingunni í Reykjavík

Ný stjórn fulltrúa­ráðs mun taka ákvörðun um hvort Samfylkingin heldur prófkjör fyrir borgar­stjórnar­kosningar næsta vor.

Heiða Björg Hilmisdóttir
Heiða Björg Hilm­is­dóttir Oddviti Sam­fylk­ing­ar­innar tók við af Einari Þor­steins­syni úr Fram­sókn­ar­flokki eftir meiri­hluta­slit í febr­úar. Mynd: Golli

Ný stjórn fulltrúa­ráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík (FSR) mun vera kosin á aðalfundi þess á mánudag og í kjölfarið taka ákvörðun um hvort prófkjör verði haldið vegna borgar­stjórnar­kosninga næsta vor.

Samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar er nokkur krafa innan flokksins um endurnýjun á framboðs­lista til borgar­stjórnar. Viðmælendur sögðu að lítil trú væri meðal flokks­manna um að kjósendur mundu fylkja sér bak við núverandi borgar­fulltrúa yrðu þeir einir í framboði í vor. Ákall sé uppi um ný andlit og einnig fleiri fulltrúa yngri kynslóða í borgar­málin.

Flokkurinn er nú með fimm borgar­fulltrúa af 23, þar á meðal Heiðu Björg Hilmis­dóttur borgar­stjóra, en samkvæmt nýjustu könnun Maskínu er 45% borgarbúa óánægður með störf hennar en 19% ánægð. Þá mældist flokkurinn minni en Sjálfstæðis­flokkurinn í könnuninni, með 25% fylgi, sem er þó töluvert meira en hann hlaut í síðustu borgar­stjórnar­kosningum, eða 20,5%.

Heiða Björg staðfesti í samtali við RÚV á mánudag að hún …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár