„Þetta er ekki fyrirbrigði sem unir neinum landamærum“

Logi Ein­ars­son menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráð­herra segir það þjóðar­ör­ygg­is­mál að tryggja getu Íslands til að nýta gervi­greind. Hann segir hættu steðja að lýð­ræði og jafn­rétti verði hún ekki rétt inn­leidd en sér tæki­færi í heil­brigð­is­þjón­ustu.

„Þetta er ekki fyrirbrigði sem unir neinum landamærum“
Logi Ein­ars­son Ráðherra segir mik­il­vægt að tryggja gervi­greind­ar­full­veldi Íslands. Mynd: Heiða Helgadóttir

Logi Ein­ars­son menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráð­herra vill ganga lengra en Evr­ópu­sam­bandið í að taka á djúp­fölsuðu efni og segir það þjóðar­ör­ygg­is­mál að tryggja „gervi­greind­ar­full­veldi“ Íslands.

Logi kynnti aðgerða­á­ætlun um gervi­greind í júlí. Sjálfur seg­ist hann ekki nota tækn­ina mikið. „Ég er nú svona að reyna að fikta mig áfram, meira af vilja en getu, en ég er ekki viss um að ég sé að nota hana rétt,“ segir Logi. „En ég held að það sé nauð­syn­legt fyrir mig eins og alla aðra að til­einka mér þessa tækni. Þó að hún hafi ýmsar hættur í för með sér hefur hún líka aug­ljós tæki­færi.“

Aðspurður segir hann helstu tæki­færi og hættur við inn­leið­ingu gervi­greindar á Íslandi fel­ast í smæð sam­fé­lags­ins. „Við búum í sam­fé­lagi þar sem ríkir víð­tækt traust til stofn­ana, það er til­tölu­lega mik­ill félags­legur jöfn­uður, inn­viðir eru að ein­hverju leyti …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gervigreindin tekur yfir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár